kennsluromur / 00010 /a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881.txt
rkjaran's picture
Initial commit with version 22.01
73dc787 verified
raw
history blame contribute delete
No virus
12.6 kB
segment_id start_time end_time set text
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00000 1590 7785 train Þá er komið að því að fjalla um fyrstu riftunarregluna sem felst í hundrað þrítugustu og fjórðu grein.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00001 8576 11304 train Hún er lang, langalgengust.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00002 11304 18864 train Og ég gæti varið hér heilum degi í að telja upp alla dómana þar sem fallist hefur verið á beitingu ákvæðisins.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00003 19623 22384 train Margir dómar, mörg álitaefni.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00004 22723 34596 train En hér ætla ég að leyfa mér að vísa á, og þið skoðið vel umfjöllun Viðars Más um regluna, en þá er sem sagt.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00005 35839 51423 train Ég er búin að fjalla hér um hvenær á að meta hvort að greiðslueyrir sé óvenjulegur, það er þegar að greiðsla fer frá skuldaranum, ekki þegar hún kemur til kröfuhafa. Þetta á við um þessa, þetta skilyrði um óvenjulegan greiðslueyri.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00006 52563 59826 train Nú, það stendur í þessu ákvæði að það megi rifta greiðslu á skuld sem fer fram með óvenjulegum greiðslueyri.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00007 60247 79576 dev Og í sjálfu sér er óvenjulegur greiðslueyrir ekki, veitir ekki mikla vísbendingu, þetta er þá dæmi um vísireglu á sviði, já, bara, vísireglu í lögfræðinni, það er að segja lögfræðiregla sem vísar út fyrir sig til nánari skýringar.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00008 79601 91512 dev Dómari hér verður að meta hvað er óvenjulegur greiðslueyrir og þarna eru ákveðnar vísbendingar, upphaflega umsaminn greiðslueyrir hlýtur alltaf að teljast venjulegur.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00009 91512 110415 train Og svo erum við með dóminn, þarna hundrað fimmtíu og eitt tvö þúsund og ellefu, þar sem að er að fjalla um, þarna var krafist riftunar á, og endurgreiðsla á einni komma átta milljón króna sem hefði farið fram í peningum, og, í sjálfu sér kannski ágætt að skoða þennan dóm aðeins nánar.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00010 110861 119353 train Þarna hafði N-einn verið að rukka Neshamra og þarna var komið veruleg skuld.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00011 121058 129794 train Og þeir gera, og N-einn gerir fjárnám í fimmtán nánar tilgreindum bifreiðum fyrir þessari skuld og einhverju fleira dóti.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00012 129794 153172 train Og það er farið fram á nauðungarsölu á þessum eignum en áður en að komið var að því að fara fram á nauðungarsöluna þá kemst samkomulag á milli Neshamra sem er þá núna orðið þrotabú og N-eins um að félagið myndi greiða upp skuldina með greiðslu einn komma átta milljón og það borgar þessa skuld með peningum í september, tvö þúsund og átta.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00013 153485 160665 train Síðan er bú Neshamra tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar tvö þúsund og níu en frestdagurinn við skiptin er í desember tvö þúsund og átta.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00014 160665 166014 train Þannig að þið sjáið að greiðslan fer fram þriðja september, en frestdagurinn er fjórði desember.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00015 166648 200077 train Og þarna erum við bara að velta fyrir okkur, og þarna fer sem sagt þrotabúið í riftunarmál og krefst riftunar á greiðslu með óvenjulegum greiðslueyri, segir að, að, í stefnu að Neshamrar hafi greitt skuld við, við, hérna, kröfuhafa sinn á síðustu sex mánuðum fyrir frestdag eftir fyrstu málsgrein hundrað þrítugustu og fjórðu greinar og var byggt á því að greiðslan væri óvenjuleg ef litið væri til fyrri viðskipta stefnda og stefnanda, það er að segja milli Neshamra og N-eins.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00016 200724 218576 eval En Hæstiréttur segir að það er, það hefur ekkert komið fram um það í málinu að peningar gæti hafa talist óvenjulegur greiðslueyrir í ljósi fyrri viðskipta við, milli félaganna.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00017 219431 232789 train Þannig að þetta, Hæstiréttur segir bara: það er, það er ekki neitt komið fram um það að greiðsla með peningum sé óvenjulegur greiðslueyrir í skilningi þessa hluta riftunarákvæðis hundrað þrítugustu og fjórðu greinar.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00018 233220 258080 eval Síðan er svona ýjað að því að hugsanlega hefði skiptastjóri þarna átt að fara fram með riftunarkröfu á öðrum grundvelli, vegna þess að því hafi verið fyrst hreyft við munnlegan málflutning fyrir dómi, að þetta kynni að hafa skert greiðslugetu Neshamra verulega, en þarna var ekkert komið fram um það að svo háttaði til.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00019 258284 271033 dev Þarna er Hæstiréttur að byggja á því, eða svona ýja að því að hugsanlega kynni skiptastjóri að hafa átt að byggja riftunarkröfuna á þeim hluta riftunarreglu hundrað þrítugustu og fjórðu greinar.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00020 271033 283888 train Það er að segja að svona há greiðsla, rétt undir lok, þegar svona, var farið að halla verulega undan fæti í rekstri félagsins, að það kynni að hafa skert greiðslugetu þrotamanns verulega.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00021 285011 309262 train En síðan er líka byggt í þessu máli á hundrað fertugustu og fyrstu grein gjaldþrotaskiptalaga, og þið setjið það út á spássíu, en þarna var sem sagt ekki, ekki neitt varpað ljósi á það hvort eða hvernig, N-einn, sem sagt viðtakandi greiðslu hafi mátt vita um ógjaldfærni Neshamra, það er sem sagt sönnunarbyrðin um vitneskju N-eins um stöðu Neshamra lá ekki fyrir.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00022 311853 318903 train Já, þannig að það er sem sagt, það er hægt að skoða, upphaflega umsaminn greiðslueyrir hlýtur alltaf að teljast venjulegur.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00023 318932 325029 train Greiðsla með peningum hlýtur, svona almennt hefur líkurnar með sér að teljast venjulegur greiðslueyrir.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00024 325430 347223 eval En þá er spurning: af hverju er þá greiðsla með óvenjulegum greiðslueyri riftanleg og Viðar Már fjallar um þetta í bókinni sinni, en við göngum út frá því að kröfuhafa sé ekki skylt að taka við greiðslu í öðrum greiðslueyri en þeim sem var samið um upphaflega, eða þá í peningum, og að sama skapi verður skuldari eða seljandi ekki knúinn til að efna í öðrum greiðslueyri en um var samið.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00025 347223 349233 train Þetta eru meginreglurnar í fjármunarétti.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00026 349564 362483 train Ef við síðan færum þær yfir í skuldaskilaréttinn þá eru taldar löglíkur á að þetta geri kröfuhafi eingöngu vegna þess að honum sé ljóst að hann fær ekki efndir með öðrum hætti.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00027 362612 380025 train Og ég vek athygli ykkar á svona fimm atriðum í kennslubók sem geta verið vegvísir um það hvenær greiðsla með óeðlilegum greiðslueyri telst riftanleg, eða sem sagt hvað leiðir til þess að, að greiðsla sé, teljist óvenjuleg í skilningi ákvæðisins.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00028 380676 389080 train Og þetta tengist líka mati á því hvort greiðsla sé venjuleg eftir atvikum, þetta eru sömu, eða sambærileg fimm atriði sem hægt er að skoða.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00029 390270 400890 train En við sjáum bara, sem sagt þetta, var ráðstöfunin venjuleg í þessari starfsemi eða á þessu starfssviði, var, hafði skuldarinn áður greitt með þessum greiðslueyri?
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00030 401759 412182 eval Við sjáum það þegar við skoðum venjulega eftir atvikum að einstakt tilvik eða tvö duga ekki, það þarf að vera einhver föst venja eða svona fastari venja en einu sinni, tvisvar.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00031 412987 422678 train Má líta á þessa greiðslu sem eðlilegan þátt í starfseminni, eða er yfirleitt hægt að telja hana til eðlilegra viðskiptahátta og varð [UNK] þessi ráðstöfun til vegna þrýstings frá kröfuhafa?
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00032 422800 437819 eval Allt þetta er skoðað, og svo er listi í bókinni hjá Viðari Má og fullt af dómum, og það í sjálfu sér, kannski aðallega að þið skiljið hvað eru, hvers konar verðmæti þarna eru að skipta um hendur.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00033 437871 476471 eval Er fjöldi dóma sem hægt er að skoða í kennslubókinni, en þetta eru sem sagt hvers konar lausafjármunir, bílar mikið, raftæki, hjól, sjampó og ég hef verið skiptastjóri þar sem ég fékk bretti af hárnæringu, líka KitchenAid hrærivélar, ég fékk líka hótun um að skila til mín hérna, það voru egg, það er sykur, alls konar, þetta er eiginlega [HIK: ótelj] bara allt það sem skiptir eða hefur verðmæti í viðskiptum getur hér verið reitt af hendi sem endurgjald í svona þessum, í við skiptum sem greiðsla.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00034 477854 490796 dev Nú geta verið hvers konar kröfur á hendur þriðja manni og ég hef þá reynslu af því að kenna, þetta er kannski, þið hafið ekki mikla, með fullri virðingu þá kannski þekkið þið ekki þetta.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00035 491040 493135 train Þannig að ég ætla aðeins að útskýra þetta betur.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00036 493723 501473 train Þetta eru sem sagt kröfur á hendur þriðja manni, þetta eru ekki, já, sem sagt, þetta eru skuldabréf, víxlar, viðskiptakröfur og fleira.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00037 501980 538671 dev Afsakið, það er hérna, þetta er þá ekki, sem sagt þetta er ekki það að, að, að hið gjaldþrota félag gefi út skuldabréf, víxil eða viðskiptakröfu og noti það í viðskiptum, heldur þegar að hið gjaldþrota félag á kröfu eftir, samkvæmt skuldabréfi, víxli eða viðskiptakröfu á einhvern annan aðila, það er einhver annar sem á að borga þrotabúinu þessa kröfu og þrotabúið notar [HIK: þe] þessa eign sem greiðslu í öðrum viðskiptum til annars kröfuhafa.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00038 538671 544765 train Dæmi: ég var einu sinni að vinna í, í blómabúð, það er fyrir mörg hundruð árum.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00039 544952 568451 train Og þá gerðist það alltaf að, að þá voru víxlar mjög mikið notaðir í viðskiptum við heildsala, þannig að þegar að blómabúðin var að kaupa vörur inn í búðina þá var gefinn út víxill fyrir andvirði vörunnar, sem sagt heildsalinn afhenti blómabúðinni vöru og blómabúðin skrifaði upp á víxil sem átti að greiðast eftir þrjá mánuði.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00040 568850 582069 train Þá, ef að heildsalinn hefði verið gjaldþrota eða í slæmri stöðu fjárhagslega, þá hefði hann farið og borgað skuldir sínar við skattinn eða við einhvern annan aðila með þessum víxli á blómabúðina.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00041 582528 586278 train Það er viðskiptakrafa eða víxilkrafa á hendur þriðja manni.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00042 586985 589363 train Og það eru mjög margir dómar um þetta tilvik.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00043 589798 596635 train Nú, eins og í Haferninum þá var verið að greiða með hlutabréfum, það er líka hægt að greiða með innstæðum á viðskiptareikningi.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00044 596635 603703 train Þið kannski munið eftir bílasölu Guðfinns, þar sem að Guðfinnur varð fyrir riftun.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00045 603703 615302 train Hann var að millifæra á milli viðskiptareikninga, hann, hann reyndar krafðist að skila á grundvelli hundrað fertugustu og fjórðu greinar, við fjölluðum um þetta í síðustu viku. Það var greiðsla með viðskiptareikningi.
a3bb1187-9446-4503-97f9-2f69e02d3881_00046 615302 621692 train Og svo, líka geti hugsanlega verið með afhendingu fasteigna, þó ekki veðsetningu heldur afhendingu fasteigna.