Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/trodid-a-amtsbokasafninu
Troðið á Amtsbókasafninu Hver einasti stóll í eigu Amtsbókasafnsins á Akureyri var setinn í gær þegar Þorvaldur Þorsteinsson hélt þar erindi um leti í fyrirlestraröðinni um dauðasyndirnar sjö. Um 140 manns sóttu fyrirlesturinn og gerðu góðan róm að tölu Þorvaldar. Hann var þó ekki einn í pontu allan tímann því með Þorv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-a-vetrarhatid-1
Akureyri á Vetrarhátíð Vetrarhátíð í Reykjavík var sett í gær og að venju láta nokkrir valinkunnir listamenn frá Akureyri að sér kveða syðra sem hluti af dagskránni. Í þetta sinn munu þau Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðluleikari, Petrea Óskarsdóttir, þverflautuleikari, Ulle Hahndorf, sellóleikari og Þórarinn Stefánsson, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haefileikabudir-i-blaki
Hæfileikabúðir í blaki Um helgina voru haldnar árlegar hæfileikabúðir Blaksambands Íslands á Akureyri. Sjötíu krakkar mættu til leiks að þessu sinni sem er fjölmennasti hópur sem tekið hefur þátt í búðunum þau fimm skipti sem þær hafa verið haldnar frá árinu 2003. Sigurður Arnar Ólafsson og Marek Bernat stjórnuðu búðun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonlistarveisla
Tónlistarveisla Nú um helgina, dagana 3.-4. mars stendur mikið til hjá Tónlistarskólanum á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Tónlistarskólinn heldur hátíðlegan dag tónlistarskólanna með tónleikum í Ketilhúsinu laugardaginn 3. mars þar sem tónleikar verða haldnir allan daginn, nemendur á öllum stigum koma fram...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningaratak-um-sofnun-onytra-rafhladna
Kynningarátak um söfnun ónýtra rafhlaðna Úrvinnslusjóður hóf nú á dögunum kynningarátak vegna söfnunar á ónýtum rafhlöðum til úrvinnslu. Markmið átaksins er að fá fleiri til að safna og skila notuðum rafhlöðum, auka vitund almennings um mikilvægi þess að rafhlöðum sé skilað og vekja athygli á að einfalt sé að losna við...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnir-dagar-i-vma
Opnir dagar í VMA Opnir dagar hófust í Verkmenntaskólanum á Akureyri í dag. Skólinn býður nemendum tilbreytingu frá hefðbundinni stundaskrá í tvo daga þar sem þau geta kynnt sér margvísleg málefni og alls kyns tómstundagaman, bæði verklega og bóklega. Má þar m.a.nefna fluguhnýtingar, nudd, skreytimálun, líkamsræktar- o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/huglist-odur-til-augna-og-eyrna
Huglist: Óður til augna og eyrna Geðfatlaðir einstaklingar sem búa í áfangaheimilum og þjónustuíbúðum á Akureyri standa fyrir glæsilegri listasýningu núna í mars. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, opnar sýninguna kl. 14.00 laugardaginn 3. mars í sal Rósenborgar (gamla Barnaskóla Akureyrar). Íbúar eru margir mjög ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/syningarlok-a-listasafninu
Sýningarlok á Listasafninu Sunnudaginn 4. mars lýkur sýningu á verkum Jóns Óskars, sem nefnist „Les yeux de l’ombre jaune" (Augu Gula skuggans) í Listasafninu á Akureyri, og einnig sýningu á innsetningunni „Tyrfingar“ eftir bandaríska listamanninn Adam Bateman í vestursal safnsins. Sýning Jóns Óskars er ekki hefðbundið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lostafullt-a-amtsbokasafninu
Lostafullt á Amtsbókasafninu Sjötti fyrirlesturinn í röðinni vinsælu um dauðasyndirnar sjö verður fluttur á Amtsbókasafninu í dag kl. 17.15. Áður auglýstur fyrirlesari átti ekki heimangengt en í skarðið hleypur Giorgio Baruchello og ætlar að fjalla um lostann. Fyrirlesturinn, sem verður fluttur á ensku, nefnist „Lust: ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utbod-fyrir-idnadarmenn
Útboð fyrir iðnaðarmenn Miðvikudaginn 7. mars verður haldinn sérstakur kynningarfundur vegna útboðs á vinnu aðskyldra iðngreina innanhúss í Hofi - menningarhúsi. Fundurinn verður haldinn frá kl. 10-12 í bæjarstjórnarsalnum á 4. hæð Ráðhússins á Akureyri. Stærð hússins er um 7.513 m² og 38.962 m³ og eru það brúttóstærði...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolahreysti-a-akureyri
Skólahreysti á Akureyri Næsta fimmtudag, þann 8. mars, verður Skólahreysti haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri. Alls verða haldnar 10 forkeppnir í Skólahreysti og er sex keppnum þegar lokið. Skjár einn tekur upp allar keppnirnar og sýnir þær kl. 20.00 á þriðjudagskvöldum. Skólahreysti er hreystikeppni fyrir 9. og 10. b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sigrun-bjork-i-syningu-hja-la
Sigrún Björk í sýningu hjá LA Það verður mikið um að vera hjá Leikfélagi Akureyrar á næstu vikum. Tilkynnt hefur verið að hin margrómaða sýning Best í heimi verði gestasýning leikársins, Píkusögur verða fluttar einu sinni í Samkomhúsinu þann 15. mars en meðal flytjenda er Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri. Leikrit...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-verdi-enn-alitlegri-kostur-til-busetu
Akureyri verði enn álitlegri kostur til búsetu Þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar um rekstur, fjármál og framkvæmdir fyrir árin 2008-2010 kom til seinni umræðu í bæjarstjórn Akureyrar í gær, þriðjudaginn 6. mars. Í áætluninni kemur fram að gert er ráð fyrir vaxandi rekstrarafgangi, miklum framkvæmdum og bættri þjónustu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/studningur-vid-meistaranam
Stuðningur við meistaranám Háskólinn á Akureyri hefur gert samninga við nokkur fjármálafyrirtæki um að þau komi með faglegum og fjárhagslegum hætti að uppbyggingu meistaranáms í viðskiptafræði sem hefst hjá háskólanum næsta haust. Fyrirtækin sem um ræðir eru Saga Capital, Sparisjóður Norðlendinga og fleiri sparisjóðir,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/reidilestur-a-amtsbokasafninu
Reiðilestur á Amtsbókasafninu Síðasti lesturinn í fyrirlestraröðinni um dauðasyndirnar sjö verður fluttur á Amtsbókasafninu á Akureyri klukkan 17.15 í dag, fimmtudaginn 8. mars. Boðaður fyrirlesari átti ekki heimangengt og munu Ágúst Þór Árnason og Þórgnýr Dýrfjörð hlaupa í skarðið. Umfjöllunarefnið er höfuðsyndin reið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skidavedurspa
Skíðaveðurspá Veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson hefur verið fenginn til að gera nákvæma og glögga veðurspá fyrir skíðasvæðið í Hlíðarfjalli tvisvar í viku. Spárnar eru gerðar snemma morguns miðvikudaga og föstudaga á grunni nýjustu reiknilíkana. Skíðafólk getur því gengið að þeim vísum með morgunkaffinu þessa daga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/78-fjolgun-farthega-med-straeto
78% fjölgun farþega með strætó Farþegum með Strætisvögnum Akureyrar fjölgaði um ríflega 78% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra. Í janúar var fjölgunin um 60% og því virðist sem þróunin sé öll í rétta átt og að bæjarbúar taki þeirri nýbreytni að hafa ókeypis í strætó opnum örmum. Farþegafjöldi á dag í febrúar var að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarflugvollur-breyting-a-greinargerd
Akureyrarflugvöllur - breyting á greinargerð Akureyrarbær auglýsir hér með greinargerð deiliskipulags Akureyrarflugvallar að nýju eftir breytingar, skv. 25 gr. skipulags og byggingarlaga. Kaflanúmerum hefur verið breytt. Einnig hafa verið gerðar breytingar á hámarkshæð bygginga og nýtingarhlutfalli lóða. Skipulagsskilm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-maett-a-skolahreysti
Vel mætt á Skólahreysti Skólahreysti var haldið fyrir troðfullu húsi í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær, þar sem norðlenskir nemendur mættu vaskir til leiks og tóku á honum stóra sínum. Fullt var útúr dyrum og því greinilegt að mikill áhugi er hjá fólki fyrir keppnum sem þessum. Eins og fram kom í frétt okkar fyrr í vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/margt-ad-gerast-um-helgina
Margt að gerast um helgina Mikið er um að vera á Akureyri um helgina, hvort heldur sem er á sviði lista, menninga eða íþrótta og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars má nefna sýningu á Svörtum ketti hjá Leikfélagi Akureyrar, opnanir ýmissa listasýninga og deildarbikarleikur í körfubolta. Gott ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarflugvollur-breyting-a-greinargerd-1
Akureyrarflugvöllur - breyting á greinargerð Akureyrarbær auglýsir hér með greinargerð deiliskipulags Akureyrarflugvallar að nýju eftir breytingar, skv. 25 gr. skipulags og byggingarlaga. Kaflanúmerum hefur verið breytt. Einnig hafa verið gerðar breytingar á hámarkshæð bygginga og nýtingarhlutfalli lóða. Skipulagsskilm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heyrnarlausir-thakka-akureyrarbae
Heyrnarlausir þakka Akureyrarbæ Á uppskeruhátíð Félags heyrnarlausra sem haldin var í Norræna húsinu í Reykjavík föstudaginn 9. mars var Akureyrarbæ veitt viðurkenning fyrir góðar móttökur og aðstoð þegar Norræn menningarhátíð heyrnarlausra og alþjóðleg leiklistarhátíð voru haldnar hér í bæ síðasta sumar. Auk Akureyrar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ratatoskur-i-ma
Ratatoskur í MA Opnir dagar í Menntaskólanum á Akureyri, sem kenndir eru við Ratatosk, voru haldnir í dag og í gær. Mikið var um að vera á alls kyns fyrirlestrum og námskeiðum sem nemendur sóttu. Meðal þess sem nemendur fengu að kynnast var siðfræði, vinnuaðferðir í blaðamennsku, fluguhnýtingar, hvernig það er að vinna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ardsemi-kjalvegar-5-6-milljardar-krona
Arðsemi Kjalvegar 5,6 milljarðar króna Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur lagt mat á þjóðhagslega arðsemi og samfélagsleg áhrif af lagningu vegar yfir Kjöl. Niðurstöðurnar sýna að framkvæmdin er mjög arðbær og fellur vel að byggðaáætlun og samgönguáætlun stjórnvalda. Samfélagslegur ábati af framkvæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stapi-lifeyrissjodur-verdur-til
Stapi, lífeyrissjóður verður til Samþykkt var að sameina Lífeyrissjóð Austurlands og Lífeyrissjóð Norðurlands á ársfundum sjóðanna sem haldnir voru á Hótel Reynihlíð við Mývatn föstudaginn 9. mars sl. Nafn hins nýja sjóðs verður Stapi, lífeyrissjóður. Sameiningin mun þó ekki taka formlega gildi fyrr en að fengnu samþyk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/naustahverfi-2-afangi-somatun-4-6-og-8-ndash-tillaga-ad
Naustahverfi 2. áfangi, Sómatún 4, 6 og 8 – tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Breyting á skilmálum húsagerðar H. Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naustahverfis 2. áfanga. Deiliskipulagsbreytingin er 0,23 ha að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/2-9-milljardar-til-lifeyrissjods-starfsmanna-akureyrarbaejar
2,9 milljarðar til Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, afhenti í morgun Kára Arnóri Kárasyni, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Norðurlands sem annast fjármál LSA, skuldabréf vegna sölu Akureyrarbæjar á hlut sínum í Landsvirkjun að andvirði rúmir 2,9 milljarðar króna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/konur-og-skak-a-akureyri-um-helgina
Konur og skák á Akureyri um helgina Íslandsmót stúlkna í skák verður haldið í húsakynnum Skákfélags Akureyrar í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð laugardaginn 17. mars og kvöldið áður halda stórmeistari kvenna Lenka Ptacnikova og forseti skáksambands Íslands Guðfríður Lilja Grétarsdóttir fyrirlestur á konukvöldi kl. 20.00...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinjettusiddegi-a-amtsbokasafninu
Vinjettusíðdegi á Amtsbókasafninu Svokallað Vinjettusíðdegi verður haldið á Amtsbókasafninu frá kl. 14.30-16.30 á morgun, laugardaginn 17. mars. Lesið verður úr Vinjettubókum Ármanns Reynissonar. Auk Ármanns koma fram: Jóhann Ingimarsson listamaður, Saga Jónsdóttir leikkona, Hermann J. Tómasson formaður bæjarráðs, Svan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sparisjodurinn-styrkir-knattspyrnustulkur
Sparisjóðurinn styrkir knattspyrnustúlkur Sparisjóður Norðlendinga og meistaraflokkur kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu skrifuðu miðvikudaginn 14. mars undir veglegan styrktarsamning fyrir árið 2007. Stúlkurnar hafa æft af krafti í allan vetur og eru tilbúnar fyrir sumarið, enda fyrsti leikurinn næstkomandi laugardag á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/112-opnar-vardstofu-a-akureyri
112 opnar varðstofu á Akureyri Neyðarlínan, 112, opnaði á föstudag varðstofu með þremur neyðarvörðum á Akureyri. 112 hefur hingað til haft varastöð í húsnæði lögreglunnar á Akureyri en nýja varðstofan verður í fullum rekstri samhliða varðstofunni í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í Reykjavík. Að sögn Dagnýjar Halldórsd...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matis-eflir-starf-sitt-a-akureyri
Matís eflir starf sitt á Akureyri Matís á Akureyri (Matvælarannsóknir Íslands) hefur tekið í notkun myndgreinibúnað sem mun stórefla rannsóknir fyrirtækisins á svæðinu. Þegar hefur verið fjölgað um hálft stöðugildi og stefnt er að því að fjölga um nokkur stöðugildi til viðbótar með frekari eflingu rannsókna. Myndgreini...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utbod-vegna-raestinga
Útboð vegna ræstinga Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í ræstingar á 10 leikskólum og einum grunnskóla. Heildarflatarmál er um 6000 m² og fyrirhugað er að verktaki taki við ræstingum 1. september 2007. Útboðsgögn verða afhent bjóðendum í þjónustuanddyri Ráðhússins að Geislagötu 9 frá og með þriðjudeginum 20...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-pmt-foreldranamskeidid-a-akureyri
Fyrsta PMT foreldranámskeiðið á Akureyri Fyrsta PMT foreldranámskeiðið á Akureyri hefst í kvöld, þriðjudagskvöldið 20. mars, og stendur næstu sjö þriðjudagskvöld auk eftirfylgdar mánuði eftir að námskeiði lýkur. Um er að ræða hópnámskeið fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika eða barna í áhættu vegna hegðunar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/syning-um-jonas-hallgrimsson
Sýning um Jónas Hallgrímsson Á morgun, miðvikudaginn 21. mars, verður opnuð sýning um Jónas Hallgrímsson í Amtsbókasafninu á Akureyri. Sýningin er gerð í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli skáldsins og náttúrufræðingsins sem fæddist á Hrauni í Öxnadal 16. nóvember árið 1807. Meðal sýningarmuna eru allmörg eiginhandrit J...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stefna-haskolans-a-akureyri-2007-2011
Stefna Háskólans á Akureyri 2007?2011 Í dag var kynnt í Háskólanum á Akureyri stefna skólans til ársins 2011. Þar er sett fram eftirfarandi framtíðarsýn: „Að Háskólinn á Akureyri verði alþjóðlega viðurkennd menntastofnun sem skari fram úr á völdum fræðasviðum. Þar verði eftirsóknarvert þekkingarsamfélag sem leggi áhers...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-og-vigsla-i-rosenborg
Opið hús og vígsla í Rósenborg Fimmtudaginn 22. mars verður mikið um að vera í möguleikamiðstöðinni Rósenborg. Húsið verður opið öllum til sýnis frá kl. 14.30 til 18.00 og kl. 14.30 verður formleg vígsla hússins. Akureyringar og gestir bæjarins eru hvattir til að koma og kynnast þeirri starfsemi sem fram fer í húsinu. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdastjori-akureyrarstofu
Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu Bæjarstjórinn á Akureyri hefur ákveðið að ráða Þórgný Dýrfjörð menningarfulltrúa í stöðu framkvæmdastjóra Akureyrarstofu eftir að stjórn Akureyrarstofu hafði mælt með ráðningu hans. Umsækjendur um starfið voru 33. Þórgnýr Dýrfjörð, sem er með BA próf í heimspeki frá Háskóla Íslands, hefu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vortonleikar-kvennakors-akureyrar
Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar Kvennakór Akureyrar heldur sína árlegu vortónleika í Akureyrarkirkju laugardaginn 24. mars nk. Þetta eru sjöttu vortónleikar kórsins sem á þessu starfsári hefur á að skipa hartnær 80 konum frá Akureyri og nærsveitum. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda. Þar má finna léttmeti, þungmeti o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/timamot-hja-sinfoniunni
Tímamót hjá Sinfóníunni Í dag var undirritaður nýr samningur á milli Akureyrarbæjar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands um starfsemi hljómsveitarinnar næstu þrjú árin. Með honum er tryggð áframhaldandi blómleg starfsemi SN en framlög til hennar hækka um samtals 10,5 m.kr. á samningstímanum. Samningurinn er reistur á sa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-vid-opnun-jonasarsyningar
Fjölmenni við opnun Jónasarsýningar Fjölmennt var við opnun sýningar um Jónas Hallgrímsson á Amtsbókasafninu í gær. Sýningin er sett upp í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli skáldsins og náttúrufræðingsins. Meðal sýningarmuna eru allmörg eiginhandrit Jónasar að ljóðum hans og ritsmíðum á sviði náttúrufræði og steinasýni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lifid-notkunarreglur-frumsynt
Lífið - notkunarreglur frumsýnt Nýtt leikverk eftir Akureyringinn Þorvald Þorsteinsson, Lífið – notkunarreglur, verður frumsýnt á föstudag hjá Leikfélagi Akureyrar. Einvala lið listrænna stjórnenda stýrir leikhópi LA og útskriftarárangi Leiklistardeildar Listaháskólans en sýningin er sett upp í samstarfi þessara aðila....
https://www.akureyri.is/is/frettir/meistaranam-i-heimskautaretti-vid-ha
Meistaranám í heimskautarétti við HA Fimmtudaginn 22. mars var undirritaður samningur um að hefja meistaranám í heimskautarétti (polar law) við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Dr. Guðmundur Alfreðsson, prófessor, mun veita náminu forstöðu. Í náminu verður sérstök áhersla lögð á einstök svið þjóðarétta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/pianotonleikar-a-sunnudag
Píanótónleikar á sunnudag Sunnudaginn 25. mars kl. 17 verða tónleikar í sal Tónlistarskólans að Hvannavöllum 14 þar sem fram kemur Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanóleikari. Þóra Kristín hóf nám við skólann árið 1996 og hefur Dýrleif Bjarnadóttir kennt henni frá upphafi. Hún hefur margsinnis komið fram á tónleikum innan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarakademian
AkureyrarAkademían Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, öðru nafni AkureyrarAkademían, hélt sinn fyrsta aðalfund í gærkvöldi, 22. mars. Í félaginu eru um 50 félagsmenn og er það til húsa í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99. Þar geta félagar fengið aðstöðu til fræðistarfa gegn vægu gjaldi. Nú eru...
https://www.akureyri.is/is/frettir/edli-ritstuldar
Eðli ritstuldar Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur, hélt fyrirlestur undir yfirskriftinni „Þýðing, endurritun, ritstuldur“ á Amtsbókasafninu í gær. Lagði hann út frá þeim umræðum sem spunnust eftir útgáfu fyrsta bindis ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Jón Karl fjallaði almennt um hugtakið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lif-og-fjor-i-rosenborg
Líf og fjör í Rósenborg Opið hús var í möguleikamiðstöðinni Rósenborg í gærdag og þar fór einnig fram formleg vígsla hússins. Marga gesti bar að garði og var starfsemin kynnt með ýmsu móti. Myndirnar hér að neðan voru teknar við vígsluna og tala sínu máli. Það var þétt setinn bekkurinn í stóra salnum. Grunnskólakrakkar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framtid-haskolans-a-akureyri
Framtíð Háskólans á Akureyri Í dag, mánudaginn 26. mars, kl. 14.30 verður haldið málþing um framtíð Háskólans á Akureyri en í haust verða liðin 20 ár frá því hann hóf starfsemi sína. Á fyrsta starfsári voru nemendur um 50 en í dag eru þeir hátt á annað þúsund. Nú leggja nemendur m.a. stund á nám í kennslufræðum, auðlin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-samningur-ga-og-akureyrarbaejar
Nýr samningur GA og Akureyrarbæjar Í hádeginu í dag skrifuðu Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Halldór Rafnsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, undir nýjan samning á milli Akureyrarbæjar og GA. Samningurinn hljóðar upp á 254 milljónir í uppbyggingu golfvallarsvæðisins og golfíþróttarinnar á Akureyri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonlistarveisla-a-akureyri
Tónlistarveisla á Akureyri Dagana 31. maí til 3. júní nk. verður blásið til alþjóðlegrar tónlistarveislu á Akureyri en þá verður AIM Festival eða Akureyri International Music Festival, haldið í annað sinn í höfuðstað Norðurlands. Dagskrá hátíðarinnar er hin glæsilegasta en meðal þeirra sem koma fram eru: Fernandez Fier...
https://www.akureyri.is/is/frettir/their-eru-komnir
Þeir eru komnir Farfuglarnir tínast nú til landsins og í morgun komum við auga á fyrstu tjaldana í fjörunni við Leiruveginn. Þeir voru tveir saman og nokkuð varir um sig en leyfðu þó góðfúslega myndatöku fyrir Akureyri.is.
https://www.akureyri.is/is/frettir/stora-upplestrarkeppnin-2
Stóra upplestrarkeppnin Grunnskólarnir á Akureyri taka nú þátt í Stóru upplestrarkeppninni í 7. sinn. Hefð hefur skapast fyrir því að halda lokahátíð keppninnar í Menntaskólanum á Akureyri og verður hún fimmtudaginn 29. mars og hefst kl. 17.00. Þar munu 12 fulltrúar úr grunnskólum Akureyrarbæjar leiða saman hesta sína ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rithofundar-i-grunnskolum
Rithöfundar í grunnskólum Rithöfundarnir Einar Kárason og Einar Már Guðmundsson hafa verið á ferðinni um Akureyri og Eyjafjörð í dag og í gær að lesa fyrir grunnskólanemendur. Þeir luku yfirreið sinni í Giljaskóla í dag þar sem áhuginn skein úr hverju andliti og krakkarnir kunnu vel að meta lesturinn.
https://www.akureyri.is/is/frettir/orlagasinfonian-a-tonleikum-sn
Örlagasinfónían á tónleikum SN Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á Akureyri fimmtudaginn 5.apríl (skírdag) kl. 16.00. Einleikari á fiðlu er Ari Þór Vilhjálmsson og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á tónleikunum verða flutt verk eftir Ludvig van Beethoven og Max Bruch. Verk eftir Beeth...
https://www.akureyri.is/is/frettir/paskaaevintyri-a-akureyri-2
Páskaævintýri á Akureyri Búist er við miklum fjölda ferðamanna til Akureyrar um páskana, enda verður mikið um að vera á öllum sviðum mannlífsins. Hlíðarfjall verður að sjálfsögðu opið, sem og sundlaugin, og í menningarmálum má nefna að þrjár leiksýningar verða í gangi hjá Leikfélagi Akureyrar. Sérstök síða hefur verið ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidhorfskonnun-i-grunnskolum
Viðhorfskönnun í grunnskólum Skólaþróunarsvið HA hefur skilað af sér skýrslu sem unnin var upp úr viðhorfskönnun sem lögð var fyrir nemendur í 4.–10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar. Niðurstöðurnar eru um margt forvitnilegar og má þar nefna að nemendum virðist almennt líða vel en á móti segjast 7,7% nemenda í 8. – 10...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hadegistonleikar-a-fostudaginn-langa
Hádegistónleikar á föstudaginn langa Þórarinn Stefánsson píanóleikari kemur fram á hádegistónleikum Tónlistarfélags Akureyrar sem nú ber upp á föstudaginn langa. Þá gefst tóm á þessum degi kyrrðar og friðar að njóta góðrar tónlistar og veitinga í Ketilhúsinu. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.15. Á efnisskránni er Næturl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hafnarstraeti-53-ndash-gamli-barnaskolinn-breyting-a-deili
Hafnarstræti 53 – Gamli barnaskólinn. Breyting á deiliskipulagi. Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á deiliskipulagi Innbæjarins og fjörunnar vegna Hafnarstrætis 53. Í breytingunni felst að norðurmörk lóðarinnar færast að lóðarmörkum H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/starfslaun-listamanna-6
Starfslaun listamanna Stjórn Akureyrarstofu auglýsti á dögunum eftir umsóknum um starfslaun listamanna. Starfslaunin hafa verið veitt á Akureyri frá árinu 1990 og hafa 24 listamenn hlotið þau, 15 karlar og 9 konur. Tímabilin hafa verið frá 3 mánuðum til eins árs, en oftast hafa starfslaun verið veitt í hálft ár í senn ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/molta-ehf-stofnad
Molta ehf stofnað Í gær var stofnað hlutafélagið Molta ehf. til undirbúnings byggingu jarðgerðarstöðvar fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Að fyrirtækinu standa öll sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu og allir stærstu matvælaframleiðendurnir á svæðinu. Með stöðinni er mun verða jarðgerður meira en helmmingur af þeim úrgangi sem nú...
https://www.akureyri.is/is/frettir/taekifaeri-morgundagsins
Tækifæri morgundagsins Impra nýsköpunarmiðstöð og Orkustofnun boða til málþings föstudaginn 13. apríl kl. 14.00 - 16.30 að Borgum við Norðurslóð. Dagskrá: Setning, Sigurður Steingrímsson frá Impru nýsköpunarmiðstöð Á ég verðmæti sem ég vissi ekki af? - Elín Ragnhildur Jónsdóttir frá Einkaleyfastofu Tækifæri til lækkuna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/odinn-med-tvo-sundmenn-i-unglingalandslidi
Óðinn með tvo sundmenn í unglingalandsliði Tveir sundmenn úr Óðni á Akureyri, þeir Stefán Hannibal Hafberg og Sindri Þór Jakobsson, keppa í vikunni með unglingalandsliði Íslands sem tekur þátt í sterku alþjóðlegu móti í Luxemborg. Alls eru keppendur frá Íslandi 17 talsins. Þeir Stefán Hannibal og Sindri syntu sig inn í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hafnarstraeti-98-breyting-a-deiliskipulagi
Hafnarstræti 98 breyting á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjarins vegna Hafnarstrætis 98. Í breytingunni felst að lóðin verður skilgreind undir verslunar- og þjónustustarfsemi á 1. hæð en íbúðir á öðrum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samthaetting-eda-adskilnadur
Samþætting eða aðskilnaður Alþjóðastofan og Háskólin á Akureyri boða til ráðstefnu um málefni innflytjenda miðvikudaginn 18. apríl. Ýmsir fræðimenn munu leitast við að svara þeim spurningum sem vaknað hafa að undanförnu um stöðu innflytjenda og hlutverk samfélagsins í móttöku þeirra. Ákveðinn ótti hefur einkennt umræðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/landupplysingar-a-nordurlandi
Landupplýsingar á Norðurlandi Ráðstefna norðurlandsdeildar LÍSU samtakanna verður haldin á Hótel KEA þriðjudaginn 17. apríl. Dagskráin hefst kl. 13.00 og eru allir áhugasamir boðnir velkomnir. Dagskráin er þessi: 13.00-13.10 Setning fundar, Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir framkvæmdastjóri LÍSU. 13.10-13.30 Hörður Kristinss...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barnabaekur-i-skolastofunni
Barnabækur í skólastofunni Þriðjudaginn 17. apríl nk. standa kennslugagnadeild bókasafns Háskólans á Akureyri og kennaradeild HA fyrir málþinginu Barnabækur í skólastofunni. Fyrirlesarar verða Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og aðjúnkt við HA, Kristín Steinsdóttir rithöfundur og Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/boltabullur
Boltabullur? Börn og unglingar á Akureyri virðast ekki lengur geta spilað fótbolta óáreitt á sparkvöllum grunnskólalóðanna. Ástæðan er sú að fullvaxta karlmenn eiga það til að reka börnin burt og spila sjálfir á völlunum. Vellirnir virðast vera orðnir vinsælir af fótboltahópum eða einhverskonar karla-liðum sem skortir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eythor-ingi-song-til-sigurs
Eyþór Ingi söng til sigurs Eyþór Ingi Gunnlaugsson úr Verkmenntaskólanum á Akureyri bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri á laugardagskvöld og var sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Hann söng lagið Perfect Stranger sem Deep Purple söng upphaflega. Arnar Már Frið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brynhildur-hlytur-norraenu-barnabokaverdlaunin
Brynhildur hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin Bæjarlistamaður Akureyrar, Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur, hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin 2007 fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdælu sem komu út á árunum 2002-2006. Dómnefnd telur bækur Brynhildar vandaðar endursagnir á þremur af þekktustu Íslendingasögunum, sögu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barnastjornur-oskast
Barnastjörnur óskast Leikfélag Akureyrar leitar að börnum á aldrinum 7–14 ára til að leika við hlið atvinnuleikara í fyrstu frumsýningu haustsins 2007. Þar er á ferðinni fjölskylduleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Jón Ólafsson semur nýja tónlist fyrir sýninguna og stýrir h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundir-um-menntastefnu
Fundir um menntastefnu Kennarasamband Íslands, Félag framhaldsskólakennara og Félag grunnskólakennara efna til þriggja umræðu- og kynningarfunda með kennurum um nýja menntastefnu um grunn- og framhaldsskóla undir heitinu „Skóli morgundagsins: Grunnskóli og framhaldsskóli“. Menntastefnan er grundvöllluð á tíu punkta sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skapandi-atvinnugrein-21-aldar
Skapandi atvinnugrein 21. aldar Föstudaginn 20. apríl heldur dr. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, fyrirlesturinn „Menningarfræði – skapandi atvinnugrein 21. aldar“ í Ketilhúsinu á Akureyri. Dr. Ágúst hefur vakið athygli fyrir umfjöllun um hagrænt gildi lista og menningar og hefur m.a. skrifað bókina „Hagræn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidskiptataekifaeri-i-kina
Viðskiptatækifæri í Kína Morgunverðarfundur um viðskiptatækifæri Íslands og Kína á vegum Asíuvers Íslands og Háskólans á Akureyri verður haldinn á Hótel KEA á morgun, 18. apríl, frá kl. 9.00-11.40. Vöxtur og vægi Kína í alþjóðaviðskiptum hefur varla farið framhjá neinum sem á annað borð leggur leið sína í verslanir á Í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalfundur-odins
Aðalfundur Óðins Aðalfundur Sundfélagsins Óðins var haldinn í gærkvöldi. Á fundinn mætti meðal annarra Hörður Oddfríðarson, formaður Sundsambands Íslands, og opnaði með formlegum hætti nýja heimasíðu félagsins. Hún er sem fyrr á slóðinni www.odinn.is. Hörður Oddfríðarson, formaður Sundsambands Íslands, opnar nýja heima...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumar-songur-og-sapukulur
Sumar, söngur og sápukúlur Það verður mikið um að vera í bænum á morgun, sumardaginn fyrsta. Sannkölluð fjölskyldustemning mun ríkja í Minjasafninu og stjórn Akureyrarstofa, áður menningarmálanefnd, efnir til sinnar árlegu „Vorkomu“ þar sem meðal annars verður tilkynnt um starfslaun listamanna næsta starfsár. Sannköllu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bjorg-og-kristjan-eru-baejarlistamenn
Björg og Kristján eru bæjarlistamenn Vorkoma Akureyrarstofu var haldin í Ketilhúsinu á Akureyri í dag. Björg Þórhallsdóttir, söngkona, og Kristján Ingimarsson, leikari, hlutu starfslaun til sex mánaða hvort. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir byggingarlist og tveir hlutu viðurkenningar Húsverndarsjóðs. Viðurkenni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodminjasafnid-i-deiglunni
Þjóðminjasafnið í Deiglunni Á morgun, laugardaginn 21. apríl kl 14.00, verður sýningin „Á mótum tveggja tíma“ opnuð í Deiglunni. Þar eru sýndar ljósmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðarsonar eða Guðna í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Sýndar verða myndir víða af á landinu frá miklu umbrotask...
https://www.akureyri.is/is/frettir/450-i-aheyrnarprufum
450 í áheyrnarprufum Mikill hamagangur var í leikhúsinu á Akureyri á föstudag þegar hafin var skráning í áheyrnarprufur fyrir leiksýninguna Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur. Rúmlega 450 börn skráðu sig í prufurnar og því ljóst að leikhúsáhugi unga fólksins á Norðurlandi er með ólíkindum um þessar mundir. Greinilegt er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-islenska-thjodfelagsfraedi-1
Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði Dagana 27. - 28. apríl verður haldin ráðstefna á Akureyri um íslenska þjóðfélagsfræði. Á ráðstefnunni verða kynntar margvíslegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. Ráðstefnunni er ætlað að skapa umræðuvettvang ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fraedslufundur-um-alzheimer
Fræðslufundur um Alzheimer Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma, FAAS, stendur fyrir fræðslufundi um málefni Alzheimerssjúkra í samkomusalnum í Hlíð fimmtudaginn 26. apríl kl. 18.00. María Th. Jónsdóttir, formaður FAAS, setur fundinn. Síðan mun Kristín Inga Hannesdóttir fjalla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimur-nordurhafa
Heimur Norðurhafa Í dag var stofnað sérstakt félag á Akureyri til undirbúnings þess að í bænum rísi sjávarsafn og rannsóknamiðstöð um menningu og lífríki við Norðurhöf. Safnið yrði mjög umfangsmikið og eitt af meginsöfnum landsins. Fyrstu hugmyndir gera ráð fyrir að safnsvæðið verði allt að 5000 fermetrar að stærð og a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-umhverfisins-a-akureyri-4
Dagur umhverfisins á Akureyri Dagur umhverfisins á Íslandi er 25. apríl ár hvert. Dagurinn er fæðingardagur Sveins Pálssonar, fyrsta íslenska náttúrufræðingsins, og þess manns sem einna fyrstur hvatti til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði fyrst á íslensku þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Talsvert v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kirkjulistavika-i-akureyrarkirkju-1
Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju Dagana 28. apríl til 6. maí nk. verður Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju. Þetta er í 10. sinn sem Akureyrarkirkja og Listvinafélag Akureyrarkirkju standa að Kirkjulistaviku en hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1989. Helstu markmið Kirkjulistaviku hafa frá upphafi veri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodlegt-krullumot-a-akureyri
Alþjóðlegt krullumót á Akureyri Um komandi helgi heldur Krulludeild Skautafélags Akureyrar alþjóðlegt krullumót, Ice Cup, í fjórða sinn. Meðal keppenda verður danska kvennalandsliðið sem nýlega tryggði sér silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu í krullu. Þetta er í fjórða sinn sem Krulludeild Skautafélags Akureyrar heldu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/amtsbokasafnid-180-ara-i-dag
Amtsbókasafnið 180 ára í dag Amtsbókasafnið á Akureyri fagnar í dag 180 ára afmæli, en það var stofnað þann 25. apríl árið 1827. Í tilefni dagsins mun safnið gera vel við gesti og gangandi. Ýmislegt verður í boði í dag: Ýmis góðgæti verður að finna á safninu Sektarlaus dagur!!! (um að gera að skila þá!) Allt frítt (myn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/franskir-bruduleikarar-a-akureyri
Franskir brúðuleikarar á Akureyri Laugardaginn 28. apríl kl. 16.00, mun franski leikhópurinn Turak koma fram í Samkomuhúsinu á Akureyri. Flokkurinn er á ferð um landið með leiksýningu sem liggur mitt á milli hefðbundins leikhúss og brúðuleikhúss og mætti kalla einskonar ferðaleikhús. Í sýningunni er ýmsum brögðum beitt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/spad-brakandi-blidu
Spáð brakandi blíðu Hitamælirinn á Ráðhústorgi sýndi 15 gráðum um kl. 14 í dag og veðurspáin fyrir helgina gerir ráð fyrir jafnvel enn betra veðri. Mikið verður um að vera í bænum um helgina og ekki er ólíklegt að veðurspáin dragi að auki fólk til bæjarins. Allir helstu viðburðir í bænum eru skráðir á viðburðadagatal h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/pall-valsson-um-jonas
Páll Valsson um Jónas Í dag klukkan 17.15 heldur Páll Valsson fyrirlestur um Jónas Hallgrímsson á Amtsbókasafninu á Akureyri. Fyrirlesturinn nefnir Páll „Alefling andans og athöfn þörf - Jónas og númtíminn“. Páll Valsson er með fróðari mönnum á Íslandi um skáldið Jónas Hallgrímsson. Árið 1999 kom út ritverk hans „Jónas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haegsmot-um-helgina
Hægsmót um helgina Hængsmótið, íþróttamót fatlaðra, verður haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri um komandi helgi. Það verður í 25. sinn sem mótið er haldið og hefst það á laugardag kl. 14. Því lýkur á mánudagskvöld með glæsilegu lokahófi þar sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, verður heiðursgestur. Hængsmótið e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mannrettindi-i-islenskri-utanrikisstefnu
Mannréttindi í íslenskri utanríkisstefnu Mánudaginn 30. apríl gerir utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, grein fyrir stefnu Íslands til eflingar og verndar alþjóðlegum mannréttindum á komandi árum í erindi sem hún heldur í rannsóknarhúsinu Borgum (anddyri) við Háskólann á Akureyri. Ísland hefur átt aðild að Same...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-i-hlidarfjalli-2
Opið í Hlíðarfjalli Opið er í Hlíðarfjalli í dag frá kl. 10-17 og er þetta 135. dagurinn sem er opið þennan veturinn. Vertíðin hófst 17. nóvember og hefur verið sett nýtt opnunarmet sem er kannski ekki hvað síst nýjum snjóframleiðslubúnaði að þakka. Í tilkynningu sem starfsfólk Hlíðarfjalls sendi frá sér nú í morgunsár...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinubruni-i-blidvidrinu
Sinubruni í blíðviðrinu Bláar reykjarslæður lagði yfir Eyjafjörð í blíðviðrinu um helgina og stafaði frá sinubruna í firðinu. Talsverð brunalykt fannst á Akureyri og þá sérstaklega um helgina. Ekki eru allir á eitt sáttir um sinubruna nokkurra bænda í Eyjafjarðarsveit og víðar út með firði að austanverðu. Ítarlega er f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-harmonikunnar-5-mai
Dagur harmonikunnar 5. maí Samband íslenskra harmonikuunnenda og harmonikufélögin á landinu halda hátíðlegan dag harmonikunnar, þann 5. maí nk. Þá munu harmonikufélög víða um land kynna þetta skemmtilega hljóðfæri með sérstakri áherslu á hversu margt ungt fólk spilar á harmoniku um þessar mundir. Í tilefni dagsins verð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/metthatttaka-a-ice-cup
Metþátttaka á Ice Cup Ice Cup, alþjóðlegt krullumót á vegum Krulludeildar Skautafélags Akureyrar, fór fram um helgina og er þetta í fjórða sinn sem mótið er haldið. Átján lið tóku þátt og er það metþátttaka en í liðunum átján voru samtals yfir 80 manns með varamönnum. Fjögur erlend lið komu til landsins til þátttöku á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-i-krofugongu
Fjölmenni í kröfugöngu Mjög fjölmennt var í 1. maí kröfugöngunni á Akureyri. Blíðskaparveður var í bænum og margt fólk að sleikja sólina, auk göngumanna, þar á meðal voru bifhjólamenn sem fóru hópreið um göturnar. Hitamælirinn á Ráðhústorgi sýndi 17 gráður um þrjúleytið. Myndirnar hér að neðan tala sínu máli.
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhreinsunarvika-2007
Vorhreinsunarvika 2007 Vorhreinsunarvika verður dagana 7. - 11. maí á Akureyri. Eigendur og umráðamenn lóða eru hvattir til að hreinsa af lóðum sínum allt sem er til óþrifnaðar og óprýði. Setja má ruslið að götukanti þessa daga og munu starfsmenn bæjarins fjarlægja það samkvæmt eftirfarandi áætlun: Mánudagur 7. maí: In...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tilnefningar-til-sjonlistarverdlaunanna-2007
Tilnefningar til Sjónlistarverðlaunanna 2007 Í dag var tilkynnt um tilnefningar til Sjónlistarverðlaunanna 2007. Fyrir myndlist hlutu tilnefningar Birgir Andrésson, Hrafnkell Sigurðsson og Hekla Dögg Jónsdóttir. Á sviði hönnunar hlutu tilnefningar NIKITA – Heiða Birgisdóttir, STUDIO GRANDA –Margrét Harðardóttir og Stev...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vertu-gestur-i-heimabyggd-a-eyfirskum-safnadegi
Vertu gestur í heimabyggð á eyfirskum safnadegi Söfnin í Eyjafirði opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 5. maí. Tilefnið er eyfirski safnadagurinn en markmiðið með deginum er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem Eyjafjörður hefur upp á að bjóða. Söfnin munu þennan dag kynna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umhverfisatak-a-akureyri
Umhverfisátak á Akureyri Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar, framkvæmdaráð og heilbrigðisnefnd hafa efnt til umhverfisátaks með það að markmiði að Akureyri verði áfram fegursti bær landsins. Akureyrarbær mun sýna fordæmi með hreinsun á lóðum stofnana sinna og á opnum svæðum s.s. Glerárdal. Meginmarkmið átaksins er að ekki s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/saga-capital-faer-fjarfestingarbankaleyfi
Saga Capital fær fjárfestingarbankaleyfi Saga Capital Fjárfestingarbanki, sem hefur höfuðstöðvar sínar á Akureyri, hlaut í liðinni viku fullt fjárfestingarbankaleyfi Fjármálaeftirlitsins. Lokuðu hlutafjárútboði, sem félagið efndi til í ársbyrjun, er lokið og er eigið fé Saga Capital nú 10 milljarðar króna. Félagið fékk...