Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/matur-ur-heradi
Matur úr héraði Í athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri síðdegis í gær afhenti Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, verðlaun í samkeppni um hönnun merkis fyrir félagið “Matur úr héraði – Local food” en félagið hefur að markmiði að vekja athygli á eyfirskum matvælum og matseld. Með merkinu verður til nokkurs konar gæðastimpill...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolaljosin-tendrud
Jólaljósin tendruð Á laugardaginn sl. voru ljósin tendruð á jólatrénu sem stendur ár hvert á Ráðhústorgi. Mikil og skemmtileg dagskrá var í boði fyrir bæjarbúa sem fjölmenntu á skemmtunina. Lúðrasveit Akureyrar lék nokkur jólalög og stúlkur úr Stúlknakór Akureyrarkirkju sungu. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Helg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utifundur-gegn-ofbeldi
Útifundur gegn ofbeldi Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi verður efnt til útifundar á Ráðhústorgi föstudaginn 8. desember kl 17.00. Þann 25. nóvember var 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 16. sinn út um allan heim. 16 daga átak hefur í 16 ár unnið að því að draga kynbundið ofbel...
https://www.akureyri.is/is/frettir/anaegja-med-hlidarfjall
Ánægja með Hlíðarfjall Allflestir eru þeirrar skoðunar að Hlíðarfjall sé Akureyringum mikilvægur hlekkur í ímynd bæjarins. Það er mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og er Hlíðarfjall á meðal vinsælustu ferðamannastaða á Íslandi. Haustið hefur verið okkur norðanmönnum hagstætt og fjallið einstaklega vel sótt undanfarnar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuveisla-i-ithrottahollinni
Aðventuveisla í Íþróttahöllinni Laugardaginn 9. desember kl. 18.00, stendur mikið til í Íþróttahöllinni á Akureyri þegar boðið verður til aðventuveislu. Að þessum viðburði standa Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Knattspyrnudeild Íþróttafélagsins Þórs. Dagskráin hefst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar en með henn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjaumst-aftur
Sjáumst aftur Kór Glerárkirkju hefur sent frá sér geisladiskinn Sjáumst aftur en á honum flytur kórinn lög úr ýmsum áttum. Þar má nefna madrígala, íslensk þjóðlög og sönglög, afrísk-ameríska trúartónlist og síðast en ekki síst Misa Criolla, Kreólamessuna, sem Argentínumaðurinn Ariel Ramírez samdi árið 1963 og náði hún ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolaundirbuningur-i-laufasi
Jólaundirbúningur í Laufási Jólastemmning fortíðarinnar verður endurlífguð sunnudaginn 10. desember frá 13.30 – 16 í Gamla bænum Laufási við utanverðan Eyjafjörð. Þá mun gestum og gangandi gefast kostur á því að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla sveitasamfélaginu. Jólaundirbúningurinn hefst með...
https://www.akureyri.is/is/frettir/upplestur-unglinga
Upplestur unglinga Unglingar úr 10. bekk í Síðuskóla munu sækja Amtsbókasafnið á Akureyri heim og lesa upp úr 20 nýjum bókum þann 13. og 14. desember kl. 16.00. Þetta er liður í því að leyfa unglingum að æfa sig að tala fyrir framan annað fólk, efla sjálfstraust þeirra og þjálfa framkomu. Miðvikudaginn 13. desember kl....
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatonlist-hljomar
Jólatónlist hljómar Mikið er um að vera í tónlistarlífinu á Akureyri nú í desember og er fátt betra en að hlusta á ljúfa tónlist og njóta aðventunnar. Miðvikudagur 13. desember: Píanódeild Tónlistarskólans á Akureyri verður með jólatónleika í sal skólans kl. 18.00 . Boðið verður uppá léttar veitingar eftir tónleika. Fi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolabaerinn-akureyri
Jólabærinn Akureyri Akureyringar hafa verið duglegir að skreyta hús sín, fyrirtæki og stofnanir fyrir jólin og var einstaklega jólalegt um að litast snemma í morgun í léttri snjókomu eins og myndirnar hér að neðan sýna. Ættu allir að gefa sér tíma frá amstri dagsins til þess að rölta um bæinn og njóta ljósanna.
https://www.akureyri.is/is/frettir/litlu-jol-a-leikskolum
Litlu jól á leikskólum Víða um Akureyri er verið að halda upp á aðventuna. Yngsta kynslóðin fer ekki varhluta af því og eru leikskólar bæjarins með jólaböll og litlu jól þar sem krakkarnar syngja og dansa í kringum jólatré og borða eitthvert góðgæti. Það kemur einnig fyrir að jólasveininn láti sjá sig á samkomum sem þe...
https://www.akureyri.is/is/frettir/atvinnuskopun-kvenna-a-landsbyggdinni
Atvinnusköpun kvenna á landsbyggðinni Fimmtudaginn 14. desember útskrifuðust 20 vaskar landsbyggðarkonur af námskeiðinu Brautargengi, sem Impra nýsköpunarmiðstöð stendur fyrir. Á námskeiðinu hafa konurnar unnið að undirbúningi og þróun fjölbreyttra viðskiptahugmynda. Þetta er í sjöunda sinn sem Impra gengst fyrir námsk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/syngjandi-jolasveinar
Syngjandi jólasveinar Það hefur lengi vel verið hefð fyrir því að jólasveinarnir skelli sér upp á svalir KEA hússins í miðbæ Akureyrar og syngi þar fyrir gesti og gangandi auk þess að gefa börnunum eitthvert góðgæti. Síðastliðinn laugardag gáfu þessir jólasveinar sér tíma til þess að spjalla við börnin sem biðu þeirra ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vegleg-gjof-til-maedrastyrksnefndar-2
Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Sex verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 965.000, sl. föstudag. Björg Hansen Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar. Í ávarpi við athöfnina lýsti Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingamanna Eyjaf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framtid-gasakaupstadar
Framtíð Gásakaupstaðar Í dag var undirritaður verkefnasamningur milli Hörgárbyggðar, Akureyrarbæjar og Minjasafnsins á Akureyri um uppbyggingu ferðamannastaðar í miðaldakaupstaðnum Gásum í Eyjafirði. Undirskriftin fór fram í skötuveislu um borð í Húna II sem liggur við Torfunefsbryggju á Akureyri. Samstarfssamningurinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/3-9-miljonir-sofnudust
3,9 miljónir söfnuðust Formlegri söfnun sem útvarpsstöðin VOICE 987, Hljóðkerfa- og ljósaleiga Akureyrar, Sparisjóður Norðlendinga, N4 og Síminn stóðu fyrir, fyrir fjölskyldur á Norðurlandi, lauk formlega laugardagskvöldið 16. desember sl. í beinni útsendingu á sjónvarpstöðinni N4. Alls söfnuðust 3,9 milljónir króna se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/visnakeppni-bjargs-idjulundar
Vísnakeppni Bjargs-Iðjulundar Í nóvember s.l. var efnt til vísnasamkeppni meðal starfsmanna Akureyrarbæjar þar sem yrkisefnið átti að vera um vörur sem framleiddar eru á Plastiðjunni Bjargi – Iðjulundi. Plastiðjan er þekkt fyrir gæðaframleiðslu á ýmsum vörum, ss. raflagnaefni, mjólkursíum, lambamerkjum, klútum, vettlin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/meiri-snjo-meiri-snjo
Meiri snjó, meiri snjó Ekki hefur það farið framhjá neinum að hér norðan heiða er snjórinn á hröðu undanhaldi og er það vegna mikilla hlýinda undanfarna daga sem og hvassviðris. Af þessu hafa skapast töluverð vandræði á Akureyri og í nágrenni bæjarins. Hafa meðal annars tré rifnað upp með rótum, vatn flætt inn í íbúðir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnunartimi-sorpmottokustada
Opnunartími sorpmóttökustaða Um jól og áramót verða breyttir opnunartímar sorpmóttökustaða á Akureyri. Líkt og síðustu ár munu starfsmenn Framkvæmdarmiðstöðvarinnar fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk, dagana 8. - 12. janúar. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, verslunina Síðu og verslun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lystigardurinn-a-akureyri-deiliskipulag
Lystigarðurinn á Akureyri, deiliskipulag Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Lystigarðsins á Akureyri. Tilgangur þessa deiliskipulags er að skilgreina Lystigarðinn á Akureyri innan hefðbundins skipulagsramma í Aðalskipulagi Akureyrar 2005...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stortjon-i-kjarnaskogi
Stórtjón í Kjarnaskógi Mikið tjón varð af völdum vatnselgs í Kjarnaskógi og á Hömrum í nótt. Brunná var í miklum vexti sem og allir lækir á svæðinu. Má segja að göngustígar í skóginum hafi hreinlega skolast á brott og breyst í árfarvegi. Mjög kostnaðarsamt og tímafrekt verður að koma stígunum aftur í samt lag og bæta þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/krullari-arsins-er-fra-akureyri
Krullari ársins er frá Akureyri Krullunefnd Íþróttasambands Íslands hefur valið Jón S. Hansen úr Skautafélagi Akureyrar sem krullara ársins 2006. Jón er einn af frumherjum íþróttarinnar á Íslandi og jafnframt einn sterkasti leikmaðurinn í dag. Hann stýrði liði sínu, Skyttunum, til sigurs á Íslandsmeistaramóti 2006. Jón...
https://www.akureyri.is/is/frettir/abendingar-fra-logreglu
Ábendingar frá lögreglu Nú þegar áramótin fara í hönd hefst tíma flugelda og annarra skotelda og fylgir því oft mikill spenningur hjá börnum og unglingum. Varðandi skotelda almennt vill lögreglan koma eftirfarandi á framfæri: Heimilt er að nota skotelda á tímabilinu 28. desember til 6. janúar ár hvert að báðum dögum me...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utgafutonleikar-helga-vilberg
Útgáfutónleikar Helga Vilberg Helgi Vilberg Helgason heldur tónleika í Deiglunni í kvöld, 29. desember. Helgi og hljómsveit hans munu aðallega flytja tónlist sem hann hefur samið á umliðnum árum. Þeir sem spila með Helga eru Ólafur Haukur Árnason, Þorgerður Anna Björnsdóttir og Valgarður Óli Ómarsson. Á tónleikunum ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/megas-og-magga-stina-semja-fyrir-lifid
Megas og Magga Stína semja fyrir Lífið Tónlistarmennirnir góðkunnu Megas og Magga Stína semja tónlist við nýtt leikverk Þorvaldar Þorsteinssonar, Lífið – notkunarreglur, sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi Akureyrar í mars. Um er að ræða leikrit með söngvum en þar semja tónlistarmennirnir sönglög við texta Þorvaldar Þor...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fritt-i-straeto-og-ferjuna
Frítt í strætó og ferjuna Frá og með deginum í dag, 1. janúar 2007, verður ókeypis í strætó á Akureyri og þeir sem eiga lögheimili í Hrísey þurfa ekki að greiða fargjald í ferjuna til og frá landi. Áætlaður kostnaður vegna þessa er um 17 milljónir króna. Akureyri - öll lífsins gæði!
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-samningur-um-menningarmal
Nýr samningur um menningarmál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag þriggja ára samning um samstarf menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar um menningarmál í Akureyrarbæ. Samningurinn hljóðar upp á samtals 360 m.kr. framlag ríkisins og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagatal-akureyrarbaejar-vaentanlegt
Dagatal Akureyrarbæjar væntanlegt Líkt og í fyrra verður dagatali sem Akureyrarbær hefur látið gera dreift í öll hús í bænum. Inn á dagatalið eru merktir margir helstu viðburðir ársins, auk þess sem hagnýtar upplýsingar og fróðleik er að finna á bakhlið hvers mánaðar. Dagatal ársins 2006 mæltist mjög vel fyrir og var v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyarsdansleikur-i-ketilhusinu-2
Nýársdansleikur í Ketilhúsinu Tónlistarfélag Akureyrar heldur nýársdansleik í Ketilhúsinu næstkomandi laugardagskvöld, að kvöldi þrettánda dags jóla. Uppselt var á dansleikinn í fyrra. Kammersveit félagsins leikur Vínarvalsa og aðra sígilda dansa til klukkan ellefu undir stjórn Jakubs Kolosowsky en svo tekur við danshl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/safngestir-fengu-53-tonn-ad-lani
Safngestir fengu 53 tonn að láni Útlán Amtsbókasafnsins á Akureyri jukust verulega á síðasta ári og voru um 12% fleiri en árið 2005. Þetta er mikill viðsnúningur frá því sem verið hefur, því árið 2005 fjölgaði útlánum um 4% en árið 2003 fækkaði þeim um 5%. Lánþegar safnsins fengu að láni 194.748 gögn árið 2006 sem sams...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skoflustunga-i-hrisey
Skóflustunga í Hrísey Fyrsta skóflustungan að fjölnota íþróttahúsi í Hrísey var tekin í dag. Húsið verður allt hið fullkomnasta, svarar brýnni þörf og mun kostnaður við gerð þess, og endurbætur á sundlauginni í Hrísey, verða rúmar 300 milljónir króna. Áætluð verklok eru 6. júní 2008. Það var fagurt vetrarveður í Hrísey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljomatun-1-3-deiliskipulagsbreyting
Ljómatún 1-3, deiliskipulagsbreyting Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu að deiliskipulagi Ljómatúns 1-3 á Akureyri. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi á að byggja 2 fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals allt að 12 tólf íbúðum á lóðun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/krossaneshagi-a-afangi-endurskodun-a-deiliskipulagi
Krossaneshagi A áfangi, endurskoðun á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi A áfanga Krossaneshaga á Akureyri. Markmið með endurskoðun á deiliskipulagi A áfanga Krossaneshaga er tvíþætt; annars vegar að m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjonustusamningur-um-malefni-fatladra
Þjónustusamningur um málefni fatlaðra Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag þriggja ára þjónustusamning um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Samningsfjárhæð er rúmir 2,2 milljarðar króna. Ennfremur var skrifað undir samkomulag til eflingar búset...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-baejarstjori-a-akureyri
Nýr bæjarstjóri á Akureyri Á bæjarstjórnarfundi í dag lét Kristján Þór Júlíusson af störfum sem bæjarstjóri á Akureyri og var Sigrún Björk Jakobsdóttir kjörin í hans stað. Kristján Þór verður forseti bæjarstjórnar fram á vor og Sigrún Björk er ráðin bæjarstjóri fram í júní 2009. Bæjarfulltrúar fóru í pontu undir lok bæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatrjaahreinsun-thessa-vikuna
Jólatrjáahreinsun þessa vikuna Starfsmenn Framkvæmdarmiðstöðvarinnar á Akureyri fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk alla þessa viku og lýkur hreinsuninni föstudaginn 12. janúar. Einnig hefur gámum undir jólatré verið komið fyrir við Kaupang, Hagkaup, verslunina Síðu og verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð.
https://www.akureyri.is/is/frettir/kaupvangsstraeti-1-breyting-a-deiliskipulagi
Kaupvangsstræti 1 - breyting á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu að deiliskipulagi Kaupvangstrætis 1 á Akureyri. Lóðin að Kaupvangsstræti 1 er 1.334 m2 að stærð og er byggingu 1. áfanga lokið. Breytt deiliskipulag miða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnun-i-listasafninu-1
Opnun í Listasafninu Laugardaginn 13. janúar kl. 15 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri; annars vegar sýning á verkum Jóns Óskars, sem nefnist „Les yeux de l’ombre jaune" (Augu Gula-Skuggans), og hins vegar innsetning í vestursal safnsins eftir bandaríska listamanninn Adam Bateman, en sú sýning ber he...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verndum-thau
Verndum þau Í dag og á morgun er haldið í Rósenborg námskeið á vegum Akureyrarbæjar, menntamálaráðuneytisins og Félags fagfólks í frítímaþjónustu undir yfirskriftinni „Verndum þau“ en þar er fjallað um það hvernig bregðast skuli við ef grunur vaknar um vanrækslu eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Flest börn búa við ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frelsarinn-til-akureyrar-naesta-haust
Frelsarinn til Akureyrar næsta haust Á Akureyri eru nú að hefjast æfingar á leikverkinu „Frelsarinn“ sem frumsýnt verður í K2-leikhúsinu í Kaupmannahöfn 7. mars. Áætlað er að hefja sýningar á Akureyri og í Reykjavík næsta haust. „Frelsarinn" er eitt af tveimur verkum sem var valið til að fara leikferð um alla Danmörku ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skautafelagid-verdur-fyrirmyndarfelag
Skautafélagið verður fyrirmyndarfélag Laugardaginn 13. janúar heldur Skautafélag Akureyrar upp á 70 ára afmæli félagsins en það var stofnað 1. janúar 1937. Þá fagnar félagið janframt þeim mikla áfanga að öðlast viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, fyrst skautafélaga á landinu. Undanfarna mánuði hefur félagið unnið ö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/glatt-a-hjalla-i-listasafninu
Glatt á hjalla í Listasafninu Fjölmenni var í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 13. janúar þegar þar voru opnaðar sýningar Jóns Óskars, Les yeux de l’ombre jaune, og innsetning bandaríska listamannsins Adams Bateman, Tyrfingar. Myndirnar að neðan tala sínu máli. Listasafnið á Akureyri er opið alla daga nema mánudaga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utskrift-i-pmt-foreldrafaerni
Útskrift í PMT-foreldrafærni Föstudaginn 12. janúar sl. útskrifuðust fyrstu fagmenntunaraðilar í grunnmenntun í PMT frá Akureyri. Akureyrarbær tók þá ákvörðun haustið 2005 að innleiða PMT-foreldrafærni og SMT-skólafærni í bæjarfélagið. Forsöguna má m.a. rekja til umræðunnar um aukna hegðunarerfiðleika meðal barna og un...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-a-husid-ad-heita
Hvað á húsið að heita? Fjölmargar tillögur hafa borist í samkeppni um nafn á menningarhúsið sem nú rís á Akureyri. Enn er möguleiki fyrir fólk að skila inn hugmyndum en frestur til þess rennur út mánudaginn 22. janúar. Spennandi verkefni bíður dómnefndar um nafn á menningarhúsið en í henni eiga sæti þau Bragi Bergman, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/metar-hja-minjasafninu
Metár hjá Minjasafninu Gestir Minjasafnsins á Akureyri voru 33.610 árið 2006 og gestir Iðnaðarsafnsins á Akureyri 5.785. Samtals tóku söfnin því á móti 39.395 gestum. Það samsvarar því að hver einasti íbúi Akureyrar hafi heimsótt söfnin rúmlega tvisvar á árinu. Gestum safnanna fjölgaði um 10.393 frá árinu 2005. Hér er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frosthorkur
Frosthörkur Afar kalt hefur verið á Akureyri í morgun, allt upp undir 20 gráðu frost hefur mælst í bænum. Við slík skilyrði rýkur frostþoka upp af Pollinum og litbrigði himinsins njóta sín í kuldanum. Myndirnar hér að neðan voru teknar á Akureyri skömmu fyrir hádegi í dag.
https://www.akureyri.is/is/frettir/orninn-flygur
Örninn flýgur Fjöllistamaðurinn Örn Ingi verður með uppákomu á Amtsbókasafninu á morgun, miðvikudaginn 17. janúar, þar sem hann ætlar að velta upp ýmsum spurningum varðandi menningu, mannlíf og listir á Akureyri. Tilefnið er að nú eru 30 ár síðan Örn Ingi hætti sem bankastarfsmaður með það fyrir augum að leggja út á li...
https://www.akureyri.is/is/frettir/svartur-kottur-frumsyndur
Svartur köttur frumsýndur Þann 20. janúar verður leikritið Svartur köttur eftir Martin McDonagh frumsýnt hjá LA. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið verðskuldaða athygli. Sömu sögu er að segja um mörg fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamanninn, Halta Billa og Fegurðardrottninguna frá Línakri sem öll hafa veri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stekkjartun-32-34-deiliskipulagsbreyting
Stekkjartún 32-34,deiliskipulagsbreyting Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Nyrsti áfangi deiliskipulags Naustahverfis nær yfir helming reita 1 og 2 og reiti 3, 4 og 5 skv. Rammaskipulagi Naustahverfis. Deilis...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdir-i-hrisey
Framkvæmdir í Hrísey Í upphafi árs var fyrsta skóflustungan að nýju fjölnota íþróttahúsi í Hrísey tekin og í kjölfarið hófust framkvæmdir við endurbætur á gömlu sundlauginni og jarðvegsvinna vegna nýbyggingarinnar. Það gengur þónokkuð á, enda á nýja húsið að vera tilbúið til notkunar í júní á næsta ári. Áætlaður kostna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bornin-blota-thorrann
Börnin blóta Þorrann Það eru margir sem hugsa sér gott til glóðarinnar því Þorri hófst í dag, bóndadag. Hér á landi höfum við fylgt þessum gamla sið frá því á nítjándu öld, þegar fyrstu þorrablótin voru haldin í kaupstöðum á Íslandi. Þorrablótin héldu þeir sem flutt höfðu úr sveitinni yfir á mölina og vildu halda í gam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/danska-i-danmorku
Danska í Danmörku Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskolen í Danmörku, hafa staðið fyrir vellukkuðum tungumálanámskeiðum fyrir íslenska grunnskólanema undanfarin þrjú ár. Þáttakendur hafa verið ánægðir með dvölina ytra og námskeiðið hefur skilað sér vel þega...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-snjotrodari-i-hlidarfjalli
Nýr snjótroðari í Hlíðarfjalli Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur fest kaup á tveimur snjótroðurum, frá fyrirtækinu Kässbohrer AG, til notkunar á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Fyrri troðarinn, sem er af gerðinni PistenBully 300 Kandahar, var afhentur föstudaginn 19. janúar en hinn, PistenBully 300 ParkBully, verður afhe...
https://www.akureyri.is/is/frettir/306-fjarnemendur-hafa-brautskradst
306 fjarnemendur hafa brautskráðst Fram kom í fyrirspurnartíma á Alþingi 17. janúar sl. að skólaárið 2005–2006 stunduðu 577 fjarnemendur nám við Háskólann á Akureyri og frá upphafi hafa 306 fjarnemendur brautskráðst frá skólanum, þar af 214 á síðustu tveimur árum. Í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagny-linda-er-ithrottamadur-akureyrar
Dagný Linda er Íþróttamaður Akureyrar Dagný Linda Kristjánsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar, var valin íþróttamaður Akureyrar við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu miðvikudaginn 17. janúar sl. Hátíðin var með nýju og glæsilegu sniði sem var aðstandendum, ÍBA og íþróttaráði, til mikils sóma. Dagný Linda er þessa dagana við æf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opinn-fundur-um-akureyrarstofu
Opinn fundur um Akureyrarstofu Þriðjudaginn 30. janúar stendur stjórn Akureyrarstofu fyrir borgarafundi um stefnu og markmið hennar. Stofnun Akureyrarstofu hefur verið í undirbúningi undanfarna mánuði og er nú á lokasprettinum. Akureyrarstofa verður menningar-, markaðs- og ferðamálaskrifstofa Akureyrarbæjar og mun fyrs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mun-fleiri-nota-straeto-a-akureyri
Mun fleiri nota strætó á Akureyri Farþegum með Strætisvögnum Akureyrar hefur fjölgað um 60% frá því fargjöld voru felld niður um síðustu áramót og nær fjölgunin til allra aldurshópa. Þetta kemur fram þegar fjöldi farþega í þriðju viku þessa árs er borinn saman við sama tíma í fyrra. Að meðaltali voru farþegar á dag 640...
https://www.akureyri.is/is/frettir/daudasyndir-a-amtsbokasafninu
Dauðasyndir á Amtsbókasafninu Næstu fimmtudaga verður efnt til fyrirlestraraðar um dauðasyndirnar sjö á Amtsbókasafninu á Akureyri. Dauðasyndirnar eiga rætur sínar í kristinni trú þótt þær séu hvergi nefndar berum orðum í Biblíunni. Þær hafa ætíð verið fólki hugleiknar og er gjarnan gerður greinarmunur á smávægilegum s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gridarleg-midasala-a-karius-og-baktus
Gríðarleg miðasala á Karíus og Baktus Í gær kl. 13 hófst sala á sýningar í Borgarleikhúsinu á uppsetningu Leikfélags Akureyrar á barnaleikritinu Karíus og Baktus. Gríðarleg eftirspurn var eftir miðum og í gærkvöldi höfðu rúmlega 3.000 miðar verið seldir. Þegar er algerlega uppselt á fyrstu 15 sýningarnar. Bætt hefur ve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kammerkorinn-i-ketilhusinu
Kammerkórinn í Ketilhúsinu Næstkomandi laugardag, 27. janúar, heldur Kammerkór Norðurlands tónleika í Ketilhúsinu á Akureyri kl.16.00. Einnig verða tónleikar í Þorgeirskirkju í Ljósavatnsskarði kl. 21.00 sama dag og á sunnudag í Blönduóskirkju kl.16.00. Á efnisskrá eru íslensk sönglög og þjóðlög. Kammerkór Norðurlands ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utsala-a-malverkum
Útsala á málverkum Um helgina mun Aðalsteinn Svanur Sigfússon myndlistarmaður halda útsölu á eigin málverkum í Populus tremula í Listagilinu á Akureyri. Aðalsteinn hefur starfað að myndlist í aldarfjórðung og haldið á þriðja tug einkasýninga. Málverkin á útsölunni eru máluð á árunum frá 1985 til 1997 og eru af ýmsum st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/husfyllir-a-amtsbokasafninu
Húsfyllir á Amtsbókasafninu Fjölmenni sótti fyrsta lesturinn í fyrirlestraröðinni um dauðasyndirnar sjö sem haldinn var í gær á Amtsbókasafninu. Það var Jón Björnsson, rithöfundur, ferðagarpur og fyrrverandi félagsmálastjóri hér á Akureyri, sem þar talaði um græðgi. Um 70 manns hlýddu á lestur Jóns og þegar honum lauk ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/seinkun-vegna-landsleiks
Seinkun vegna landsleiks Ákveðið hefur verið að seinka opnum fundi um Akureyrarstofu um 45 mínútur vegna landsleiks Íslands og Danmerkur í HM í handbolta. Fundurinn hefst því klukkan 20.45 í kvöld í Ketilhúsinu. Á fundinum verður fjallað um stefnu og markmið Akureyrarstofu en stofnun hennar hefur verið í undirbúningi u...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-kaerleiksthjonustu
Málþing um kærleiksþjónustu Föstudaginn 2. febrúar næstkomandi stendur Eyjafjarðarprófastsdæmi ásamt biskupsstofu fyrir málþingi um kærleiksþjónustu kirkjunnar. Málþingið er haldið í tilefni þess að nú stendur yfir átaksár þjóðkirkjunnar um kærleiksþjónustu. Á málþinginu munu fulltrúar frá stofnunum kirkjunnar ásamt fu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hetjurnar-fa-flugmida
Hetjurnar fá flugmiða Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, afhenti í gær Hetjunum, félagi aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, flugmiða fyrir tvo með Icelandair frá Akureyri til einhvers áfangastaða félagsins en Sigrúnu höfðu verið gefnir miðarnir í tilefni þess að Icelandair býður næsta sumar be...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godur-arangur-hja-odni
Góður árangur hjá Óðni Á heimasíðu Sundfélagsins Óðins segir frá afrekshópi tuttugu sundmanna sem tóku um helgina þátt í sterku alþjóðlegu móti í Laugardalslauginni, Reykjavík International. Keppendur voru nokkuð á þriðja hundrað, þar af um 50 erlendis frá, og í þeirra hópi m.a. Martina Moravcova, tvöfaldur silfurverðl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfoniuhljomsveit-islands-a-akureyri
Sinfóníuhljómsveit Íslands á Akureyri Sinfóníuhljómsveit Íslands heimsækir höfuðstað norðurlands og heldur tónleika í íþróttahúsinu við Síðuskóla, þriðjudaginn 6. febrúar. Á efnisskránni eru verk eftir Jón Leifs, Edvard Grieg og Dímítríj Sjostakovitsj. Tónleikarnir á Akureyri eru liður í undirbúningi hljómsveitarinnar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dramb-og-brjalaedi-a-amtinu
Dramb og brjálæði á Amtinu Í dag, fimmtudaginn 1. febrúar, flytur Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur, fyrirlestur um dramb, í fyrirlestraröðinni um dauðasyndirnar sjö sem haldnir eru vikulega á Amtsbókasafninu á Akureyri. Fyrir viku reið Jón Björnsson, sálfræðingur, á vaðið og fjallaði hann um græðgina á fjölsótt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fritt-i-straeto-til-fyrirmyndar
Frítt í strætó - til fyrirmyndar Fimmtudaginn 1. febrúar héldu umhverfisráðuneytið og Akureyrarbær blaðamannafund þar sem kynntar voru rannsóknir á svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Þar hrósaði Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, Akureyringum fyrir að hafa fellt niður fargjöld í strætó og benti á að önn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samstarf-haskolans-og-landsvirkjunar
Samstarf Háskólans og Landsvirkjunar Háskólinn á Akureyri og Landsvirkjun hafa undirritað samstarfssamning. Samningurinn er framlenging á fyrri samningi sem gerður var í apríl 2001 en markmið hans er að efla grunnrannsóknir á þeim fagsviðum er tengjast rannsóknum og nýtingu á orkulindum landsins og áhrifum hennar á sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyjasta-hverfisnefndin-a-akureyri
Nýjasta hverfisnefndin á Akureyri Fimmtudagskvöldið 1. febrúar var fyrsta hverfisnefnd Naustahverfis kjörin á fjölmennum fundi í leikskólanum Naustatjörn. Þar er um að ræða sjöundu hverfisnefndina sem mynduð er á Akureyri en að auki er starfandi hverfsráð í Hrísey. Hafa þá öll hverfin á Akureyri hverfisnefnd á að skipa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samid-um-sorphirdu
Samið um sorphirðu Í dag var undirritaður nýr samstarfssamningur á milli Akureyrarbæjar og Gámaþjónustu Norðurlands ehf. um sorphirðu fyrir stofnanir Akureyrarbæjar. Það voru þau Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, og Elías Ólafsson, stjórnarformaður Gámaþjónustu Norðurlands, sem undirrituðu samninginn. Markmið sam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/influensan-er-komin
Inflúensan er komin Nokkrar fjölskyldur á Akureyri greindust með inflúensu um helgina. Þar með er þessi árvissi faraldur staðfestur og búast má við einhverjum veikindum á næstu vikum. Ýmsar kvefpestir aðrar en inflúensa ganga þessa dagana eins og venjan er á þessum árstíma. Helsti munurinn á kvefpest og inflúensu er sá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ohof-og-nautnasyki
Óhóf og nautnasýki Fyrirlestraröðin um dauðasyndirnar sjö heldur áfram og nú er komið að þriðja lestrinum. Það er Sigurður Ólafsson, heimspekikennari, sem mun tala um óhóf og nautnasýki á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 8. febrúar kl. 17.15. Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um óhóf og nautnasýki, dyggðir og lesti, syndir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lautin-i-nytt-husnaedi-med-vorinu
Lautin í nýtt húsnæði með vorinu Akureyrardeild Rauða kross Íslands, Geðverndarfélag Akureyrar og Akureyrarbær hafa gert með sér samning um áframhaldandi rekstur dagsathvarfs fyrir fólk sem á við geðraskanir að stríða. Athvarfið er nú til húsa í Þingvallastræti 32 en flyst með vorinu í nýtt húsnæði þar sem áður var lei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arfur-brietar-150-arum-sidar
Arfur Bríetar 150 árum síðar Málþing verður haldið í AkureyrarAkademíunni laugardaginn 10. febrúar kl. 14 - 17 til þess að halda uppá hin merku tvöföldu tímamót í sögu kvennabaráttunnar á Íslandi. Í tilefni þess að 150 ár voru liðin frá fæðingu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur buðu Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Kve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/veisla-og-visindi-i-ha
Veisla og vísindi í HA Kynning á námsframboði Háskólans á Akureyri verður haldin laugardaginn 10. febrúar nk. frá kl. 11 - 16. Á hátíðinni, "Veisla og vísindi", verður margt í boði fyrir gesti og gangandi. Má þar nefna lífríki hafsins í fiskabúri, tilraun með "prófessor" (hviss.. búmm.. bang..), tölvuleikir með nemendu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thekkir-thuhibyli-mannanna
Þekkir þú...híbýli mannanna? Ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri státar af safnkosti uppá 2,5 milljónir mynda. Margar myndanna eru óþekktar. Nú óskar Minjasafnið eftir aðstoð almennings við það að koma nafni á andlit og heiti á hús og önnur mannvirki. Minjasafnið á Akureyri opnar af því tilefni, laugardaginn 10. fe...
https://www.akureyri.is/is/frettir/112-dagurinn
112 dagurinn Hinn svokallaði 112 dagur verður haldinn á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum um allt land á sunnudag. Að þessu sinni verður dagurinn helgaður margvíslegum störfum sjálfboðaliða að forvörnum, leit og björgun, almannavörnum og neyðaraðstoð. Um hádegisbil sunnudaginn 11. febrúar fylkja viðbragðs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brynhildur-tilnefnd-til-norraenu-barnabokaverdlaunanna
Brynhildur tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna Brynhildur Þórarinsdóttir, bæjarlistamaður Akureyrarbæjar og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, hefur verið tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna 2007. Félag skólasafnskennara tilnefnir Brynhildi af Íslands hálfu. Brynhildur er tilnefnd fyrir bækurnar Njálu, Egl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasumar-a-akureyri-i-15-ar
Listasumar á Akureyri í 15 ár Nú er aðeins vika þar til umsóknarfrestur um þátttöku á Listasumri 2007 rennur út og vilja forsvarsmenn hátíðarinnar hvetja listamenn til að sækja um. Þetta verður í 15. skipti sem Listasumr á Akureyri er haldið og stendur hátíðin sem fyrr frá Jónsmessu til ágústloka. Markmið hátíðarinnar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thridja-oddeyrin-til-akureyrar
Þriðja Oddeyrin til Akureyrar Nýtt skip bættist í flota Samherja á sunnudag þegar Oddeyrin EA 210 lagðist að Oddeyrartangabryggjunni. Þetta er þriðja skip Samherja með þessu nafni og eru 20 ár frá því að það fyrsta kom til Akureyrar. Fjöldi fólks var mættur til að taka á móti hinu nýja skipi, þar á meðal bæjarstjórinn ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gomlu-dagblodin-fa-nytt-lif
Gömlu dagblöðin fá nýtt líf Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, og Sigrún Klara Hannesdóttir, landsbókavörður, undirrituðu í dag samstarfssamning sem felur í sér að sett verði upp ný vinnslulína á Amtsbókasafninu á Akureyri til stafrænnar endurgerðar á prentuðu efni og færslu þess á Netið. Til verkefni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samid-vid-la-og-leikhusstjorann
Samið við LA og leikhússtjórann Í hádeginu í dag var undirritaður nýr samningur Akureyrarbæjar við Leikfélag Akureyrar um leið og ráðningarsamningur Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leikhússtjóra, var endurnýjaður. Nýi samningurinn sem Akureyrarbær og Leikfélagið hafa gert nær til starfsemi leikhússins næstu þrjú árin. Með ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hof-skal-menningarhusid-heita
Hof skal menningarhúsið heita Samþykkt hefur verið að menningarhúsið sem nú rís á Akureyri skuli hljóta nafnið Hof. Alls bárust 338 tillögur um 241 nafn á húsið. Dómnefnd sem skipuð var Braga V. Bergmann, ráðgjafa, Margréti Jónsdóttur, leirlistakonu, og Sverri Páli Erlendssyni, menntaskólakennara, var einróma um niðurs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningarfundur-um-val-a-grunnskola
Kynningarfundur um val á grunnskóla Í kvöld kl. 20 verður haldinn kynningarfundur um val á grunnskóla í sal Brekkuskóla. Þar munu skólastjórar sex grunnskóla kynna skólann sinn, fyrir hvað hann stendur og starfsemina almennt í hnitmiðuðu máli. Fundurinn mun gefa góða yfirsýn á skólastarf á Akureyri. Að neðan er auglýsi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-auglystir-til-umsoknar
Styrkir auglýstir til umsóknar Akureyrarbær auglýsir nú eftir umsóknum um styrki frá félagsmálaráði, samfélags- og mannréttindaráði og úr Menningarsjóði og Húsverndarsjóði. Félagsmálaráð veitir m.a. styrki til félagasamtaka sem starfa á sviði félags- og mannúðarmála. Samfélags- og mannréttindaráð veitir rekstrarstyrki ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ofund-og-afbrydi-a-amtsbokasafninu
Öfund og afbrýði á Amtsbókasafninu Í dag kl. 17.15, fimmtudaginn 15. febrúar, flytur Valgerður Dögg Jónsdóttir, heimspekikennari við VMA, fyrirlestur um öfundina í fyrirlestraröðinni um dauðasyndirnar sjö. Valgerður Dögg útskrifaðist með BA prófi í heimspeki og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún er á lok...
https://www.akureyri.is/is/frettir/inneignarbref-til-ithrottaidkunar
Inneignarbréf til íþróttaiðkunar Íþróttadeild Akureyrar hefur á undanförnum vikum sent út inneignarbréf til barna sem verða 6 ára til og með 11 ára á árinu 2007. Bréf þetta gildir sem inneign fyrir barn á þátttökugjaldi hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri að upphæð kr. 10.000 og skal framvísað við gr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-sott-veisla-i-ha
Vel sótt veisla í HA Háskólinn á Akureyri bauð upp á "veislu og vísindi" um síðastliðna helgi. Fjölmargir lögðu leið sína þangað og kynntu sér hvað skólinn hefur uppá að bjóða. Ásamt kynningum á námi skólans var margt hægt að gera sér til skemmtunar, m.a að kryfja fiska, hlusta á fyrirlestra, fá hjúkrun fyrir bangsa og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hus-fyrir-fuglaahugamenn
Hús fyrir fuglaáhugamenn Áhugamenn um fuglaskoðun eru fjölmargir og fuglalíf víða mjög fjölbreytt í nágrenni Akureyrar. Starfsmenn bæjarins hafa nú komið fyrir tveimur fuglaskoðunarhúsum í námunda við bæinn. Annað þeirra er í Krossanesborgum en hitt í Naustaborgum vestan Hundatjarnar (þess skal þó getið, til að fyrirby...
https://www.akureyri.is/is/frettir/112-dagurinn-heppnadist-vel
112 dagurinn heppnaðist vel Síðasta sunnudag héldu viðbragðsaðilar í björgun og almannavörnum hinn svokallaða 112 dag, sem var helgaður margvíslegum störfum sjálfboðaliða að forvörnum, leit og björgun, almannavörnum og neyðaraðstoð. Markmiðið með 112 deginum var að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskudagsmyndasyning
Öskudagsmyndasýning Í tilefni útlistbreytinga á rótgrónni heimasíðu Minjasafnins www.akmus.is, sem tekin verður í notkun í þriðjudaginn 20. febrúar kl. 10, verður öskudagsmyndasýning opnuð á sama tíma. Þar má finna 55 myndir frá byrjun 20. aldar til 1995. Þarna gefst fólki kostur á að rýna í skemmitlegar myndir. Ert þú...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-afkoma-og-sterk-eiginfjarstada-fvsa
Góð afkoma og sterk eiginfjárstaða FVSA Aðalfundur Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) var haldinn á Akureyri 20. febrúar sl. Þar kom meðal annars fram að tekjur félagsins af félagsgjöldum hækkuðu um 15,7% milli ára, heildartekjur allra sjóða félagsins voru samtals um 87,8 milljónir króna. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorvaldur-thorsteinsson-fjallar-um-letina
Þorvaldur Þorsteinsson fjallar um letina Undanfarin fimmtudagssíðdegi hafa verið helguð dauðasyndunum sjö á Amtsbókasafninu á Akureyri. Nú er röðin komin að fimmtu syndinni, letinni, og það er Þorvaldur Þorsteinsson, listamaður og rithöfundur, sem ætlar að gera henni skil á morgun, fimmtudaginn 22. febrúar. Þorvaldur e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/primadonnurnar-i-freyvangsleikhusinu
Prímadonnurnar í Freyvangsleikhúsinu Föstudaginn 23. febrúar verður gamanleikurinn „Prímadonnurnar“ Íslandsfrumsýndur í Freyvangi, Eyjafjarðarsveit. Verkið er eftir Ken Ludwig, en hann hefur getið sér gott orð sem gamanleikskáld í Bandaríkjunum og hafa verk hans einnig verið sýnd víða um heim. Leikstjóri er hin góðkunn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskudagurinn-er-i-dag
Öskudagurinn er í dag Ýmsar furðuverur hafa verið á vappi um bæinn í tilefni þess að í dag er öskudagur. Börn af öllum stærðum og gerðum hafa gengið á milli fyrirtækja og stofnanna og sungið í skiptum fyrir sælgæti. Fjöldinn allur af syngjandi börnum heimsóttu m.a. Ráðhúsið og Glerártorg, þar sem þessar myndir voru tek...
https://www.akureyri.is/is/frettir/alyktad-um-samgonguaaetlun
Ályktað um samgönguáætlun Bæjarstjórn Akureyrar ályktaði sérstaklega um samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar á fundi sínum 20. febrúar síðastliðinn. Þar er hvort tveggja fagnað fyrirhuguðum endurbótum á Akureyrarflugvelli og því að Vaðlaheiðargöng skuli vera komin á dagskrá. Ályktunin um samgönguáætlunina er svohljóðandi:...
https://www.akureyri.is/is/frettir/merki-fyrir-oldrunarheimilin
Merki fyrir Öldrunarheimilin Öldrunarheimili Akureyrar óska eftir hugmyndum að merki fyrir heimilin. Merkið á að nota á bréfsefni, upplýsingabæklinga og fleira, ásamt með merki Akureyrarbæjar, sem kennimerki heimilanna. Vinsamlegast komið hugmyndum að merki í þar til gerðan kassa í anddyri hjúkrunarheimilisins Hlíðar, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oflugur-malsvari-foreldra
Öflugur málsvari foreldra Foreldrar grunnskólabarna á Akureyri og í Hrísey hafa tekið saman höndum og stofnað svæðisráð undir heitinu SAMTAKA til að vinna að sameiginlegum málefnum nemenda í grunnskólum sveitarfélagsins. Í ráðinu eiga nú sæti þrettán manns, tveir foreldrar frá hverjum grunnskóla á Akureyri og einn úr H...