Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/gistinottum-faekkar-i-september
Gistinóttum fækkar í september Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands fækkaði gistinóttum á hótelum í september á Norðurlandi um 7% á milli ára en fjölgaði um 13% á landsvísu. Mest varð aukningin á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 7.300 í 8.900 á milli ára (22,8%). Orðrétt segir í f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntasmidja-erlendra-kvenna
Menntasmiðja erlendra kvenna Alþjóðastofan á Akureyri býður um þessar mundir upp á sérstakt námskeið fyrir konur af erlendum uppruna í anda Menntasmiðju kvenna, nefnt Menntasmiðja erlendra kvenna. Á þessu námskeiði er megináhersla lögð á tungumálanám en einnig á samfélags- og menningarfræðslu og sjálfstyrkingu. Þátttak...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarkirkja-65-ara
Akureyrarkirkja 65 ára Í dag, 17. nóvember, eru liðin 65 ár frá vígslu Akureyrarkirkju hinnar nýju. Af því tilefni verður hátíðarmessa í kirkjunni sunnudaginn 20. nóvember klukkan 14. Í hátíðarmessunni verður frumflutt nýtt tónverk, „Da pacem Domine“ eftir Jón Hlöðver Áskelsson, sem hann samdi að beiðni Listvinafélags ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-straeto-a-goturnar
Nýr strætó á göturnar Nýr og fulkominn strætisvagn var tekinn í notkun í dag á Akureyri. Stefán Baldursson, forstöðumaður Strætisvagna Akureyrar, mætti að Ráðhúsinu kl. 10 í morgun og bauð fulltrúum í framkvæmdaráði bæjarins í ökuferð um bæinn. Stefán vildi nota tækifærið og hvetja bæjarbúa til að nota strætó. Hann ben...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-midbaer-a-grundvelli-ibuathings
Nýr miðbær á grundvelli íbúaþings Stýrihópur um nýjan miðbæ Akureyrar kynnti tillögur sínar um endurskoðun á aðalskipulagi bæjarins fyrir umhverfisráði í morgun. Starf stýrihópsins byggir á traustari grunni en flestar hliðstæðar skipulagsáætlanir sem gerðar hafa verið hér á landi. Hugur íbúa til miðbæjarins var kannaðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/byggdakvoti-fyrir-hrisey
Byggðakvóti fyrir Hrísey Á grundvelli reglugerðar frá sjávarútvegsráðuneytinu hefur nú verið úthlutað 4.010 þorskígildislestum til stuðnings byggðarlögum í landinu. Ákveðið var að 107 þorskígildislestum skyldi úthlutað til Hríseyjar fyrir fiskveiðiárið 2005-2006. Bæjarráð Akureyrar samþykkti reglur um úthlutun byggðakv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljosin-tendrud-a-jolatrenu-fra-randers
Ljósin tendruð á jólatrénu frá Randers Laugardaginn 26. nóvember verður kveikt á ljósunum á jólatrénu frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. Athöfnin verður á Ráðhústorgi og hefst kl. 16.00. Dagskrá: Kl. 16.00 Lúðrasveit Akureyrar leikur létt lög Kl. 16.10 Stúlknakór Akureyrarkirkju syngja nokkur jólalög Kl. 16.20 Á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ad-neyta-eda-njota-jolanna
Að neyta eða njóta jólanna? Fjölskylduráð vill hvetja til umræðu um jólahald íslenskra fjölskyldna og stendur því fyrir tveimur fundum undir yfirskriftinni: Að neyta eða njóta jólanna. Á undanförnum árum hefur mikið verið rætt um að jólin, sem eiga að vera tími helgi og samveru, hafi orðið neyslunni að bráð. Gerðar séu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/songvakeppni-felagsmidstodvanna
Söngvakeppni félagsmiðstöðvanna Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Akureyri verður haldin í félagsmiðstöðinni Undirheimum í Síðuskóla föstudagskvöldið 25. nóvember nk. Þátttakendur eru unglingar úr öllum grunnskólum bæjarins á unglingastigi, 8., 9. og 10. bekkur. Skráning fer fram hjá umsjónarmönnum félagsmiðstöðvanna. Hú...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-skipafelag-i-burdarlidnum
Nýtt skipafélag í burðarliðnum Nýtt íslenskt skipafélag er í burðarliðnum og hyggur félagið á reglulega fragtflutninga á milli Eyjafjarðar og Evrópu snemma á næsta ári. Viðræður við væntanlega fjárfesta standa yfir en Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, segir fjármögnun langt komna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-breyttu-skipulagi-midbaejar-akureyrar-endurskodun-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018
Aðalskipulag Akureyrar 2005 – 2018 Aðalskipulag Akureyrar 2005 – 2018, sem hér er lagt fram, er það fimmta í röðinni frá því fyrsta aðalskipulag bæjarins var samþykkt árið 1927. Áfram er unnið með þær áherslur sem lagt var upp með í aðalskipulaginu frá 1998 um sjálfbæra þróun og umhverfisstefnu í anda Staðardagskrár 21...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikskolar-hlutu-vidurkenningu
Leikskólar hlutu viðurkenningu Framkvæmdastjórn Akureyrarbæjar veitti leikskólum Akureyrarbæjar sérstaka viðurkenning fyrir framúrskarandi faglegt starf og góða þjónustu við bæjarbúa við athöfn á Listasafninu á Akureyri í gær, föstudaginn 25. nóvember. Að tilstuðlan skólanefndar Akureyrarbæjar var í janúar á þessu ári ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdir-samkvaemt-aaetlun
Framkvæmdir samkvæmt áætlun Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Hlíð á Akureyri ganga samkvæmt áætlun. Uppsteypu er nú lokið og er unnið við að loka þaki. Áætlað er að byggingin verði útibyrgð fyrir áramót. Í byggingunni verður hjúkrunarheimili með 60 einstaklingsherbergjum, eldhús, matsalur og búningsaðstaða fyrir starf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islandsklukkunni-hringt
Íslandsklukkunni hringt Fimmtudaginn 1. desember nk. kl. 16-18 verður boðið upp á hátíðardagskrá í Háskólanum á Akureyri til heiðurs fullveldinu. Meðal þeirra sem að dagskránni koma að þessu sinni eru Páll Magnússon, útvarpsstjóri, sem flytur erindi undir yfirskriftinni „Fullveldi og fjölmiðlun“, Finnur Friðriksson, að...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonleikar-fyrir-maedrastyrksnefnd
Tónleikar fyrir Mæðrastyrksnefnd Sunnudaginn 4. desember verða haldnir tónleikar í Brekkuskóla á Akureyri til styrktar Mæðrarstyrksnefnd Akureyrar. Kvennakór Akureyrar heldur tónleikana ásamt Stúlknakór Akureyrarkirkju og Karlakór Eyjafjarðar. Á efnisskrá kóranna verða jólalög og önnur þekkt lög sem eiga vel við á þess...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kostnadur-minnstur-a-hvern-nema-i-haskolanum-a-akureyri
Kostnaður minnstur á hvern nema í Háskólanum á Akureyri Kostnaður á hvern háskólanema er lægstur við Háskólann á Akureyri af öllum háskólum á Íslandi. Það kemur fram í bréfi Ríkisendurskoðunar til fjárlaganefndar Alþingis þar sem samanburður var gerður á níu íslenskum háskólum árin 2003 og 2004. Í fyrra var kostnaður á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matvaelarannsoknastofnun-nordur
Matvælarannsóknastofnun norður Forsvarsmenn KEA hafa með bréfi dagsettu 29. nóvember óskað formlega eftir fundi með Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra, til að ræða möguleika á því með hvaða hætti KEA gæti stutt uppbyggingu á Matvælarannsóknastofnun að hluta eða öllu leyti á félagssvæði KEA. Nú liggur fyrir að ríkis...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matur-og-tonar
Matur og tónar Litlar freistingar er yfirskrift mánaðarlegra hádegistónleika Tónlistarfélags Akureyrar í Ketilhúsinu. Þessir viðburðir hafa hlotið mikið lof þeirra sem notið hafa í haust. Á föstudag klukkan 12.15 kemur Hymnodia – Kammerkór Akureyrarkirkju fram á hádegistónleikum og flytur tónlist eftir bandaríska höfun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/slokkvilid-akureyrar-100-ara
Slökkvilið Akureyrar 100 ára Næstu daga stendur mikið til því Slökkvilið Akureyrar verður 100 ára þann 6. desember en þann dag árið 1905 skipaði Bæjarstjórn Akureyrar fyrsta slökkviliðsstjórann fyrir Slökkvilið Akureyrar. Af því tilefni verður ýmis dagskrá næstu daga. Á fimmtudag var sviðsett umferðarslys þar sem bæjar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hannes-hafstein-i-samkomuhusinu
Hannes Hafstein í Samkomuhúsinu Í tilefni af útkomu nýrrar ævisögu Hannesar Hafstein, Ég elska þig stormur eftir Guðjón Friðriksson, verður efnt til dagskrár til heiðurs Hannesi á afmælisdegi hans, sunnudaginn 4. desember, í Samkomuhúsinu á Akureyri. Þar syngir Örn Birgisson lög við kvæði Hannesar, leikararnir Þráinn K...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-veitir-styrki
KEA veitir styrki Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA við hátíðlega athöfn í Listasafninu á Akureyri í dag, að viðstöddu fjölmenni. Að þessu sinni hlutu 26 einstaklingar og félagasamtök styrki úr sjóðnum, samtals að upphæð 4.250.000 kr. Úr almenna flokknum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aevintyrid-um-augastein
Ævintýrið um Augastein Hin margrómaða jólaleiksýning Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson verður sýnd í Samkomuhúsinu á Akureyri nú fyrir jólin. Sýningarnar á Akureyri verða dagana 10. – 11. desember. Enn eru nokkur sæti laus á sýningarnar – en fyrstir koma, fyrstir fá. Sýningin var sett upp af leikhópnum Á senu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/einstakt-vedurfar
Einstakt veðurfar Undanfarna daga hefur verið stillt veður og kalt á Akureyri. Þá stígur eins konar hrímþoka upp af Polllinum og leggst yfir mestallan bæinn. Þokan skilur eftir sig hárfínar ísnálar á trjám og greinum. Birtan hefur að sama skapi verið einstök þrátt fyrir að nú sé mesta skammdegið og vetrarsólstöður efti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuveisla
Aðventuveisla Laugardaginn 10. desember kl. 18 verður boðið til aðventuveislu í Íþróttahöllinni á Akureyri í samvinnu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Knattspyrnudeildar Þórs. Dagskráin hefst með tónleikum sinfóníunnar sem leikur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Með hljómsveitinni koma fram Björg Þórhallsdót...
https://www.akureyri.is/is/frettir/engin-heilsa-an-gedheilsu
Engin heilsa án geðheilsu Þessa dagana berst jákvæð jólagjöf inn á öll heimili á Akureyri. Þar er um að ræða segulmottu með Geðorðunum 10. Motturnar eru gjöf frá Akureyrabæ og Lýðheilsustöð. Geðorðin 10 voru samin út frá niðurstöðum rannsókna á því hvað einkennir fólk sem býr við velgengni og vellíðan í lífinu. Því má ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolskyldudeild-fekk-murbrjotinn
Fjölskyldudeild fékk Múrbrjótinn Landsamtökin Þroskahjálp afhentu þremur aðilum viðurkenningu sína, hinn svokallaða Múrbrjót, síðastliðinn laugardag og var fjölskyldudeild Akureyrarbæjar meðal þeirra sem viðurkenninguna hlutu. Var það fyrir verkefnið "Atvinna með stuðningi" sem felur í sér víðtækan stuðning við þá sem ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/verdlaunahafi-fra-los-angeles
Verðlaunahafi frá Los Angeles Listakonan Anna Gunnarsdóttir kom heim frá Los Angeles á mánudag með sérstök heiðursverðlaun úr hönnunarsamkeppninni Wearable Art Expressions sem haldin var í Palos Verdes Art Center skammt frá Los Angeles. Dómnefndin kvað upp dóm sinn föstudaginn 2. desember sl. Mikill fjöldi listamanna h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/osynilegi-kotturinn-i-ma
Ósýnilegi kötturinn í MA Leikfélag Menntaskólans á Akureyri frumsýndi gamansöngleikinn Ósýnilega köttinn í Kvosinni í MA fimmtudaginn 8. desember sl. Ósýnilegi kötturinn er norskt framhaldsskólaleikrit eftir Ewoud van Veen og Sigurd Fischer Olsen, en LMA frumsýnir verkið á Íslandi í þýðingu Hafliða A. Hafliðasonar. Lei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vegleg-gjof-til-maedrastyrksnefndar
Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Sex verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag, mánudaginn 12. desember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð 900.000 kr. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar. Í ávarpi við athöfnina lýsti Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, þakk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sendinefnd-fra-murmansk
Sendinefnd frá Murmansk Nú er stödd hér á Akureyri sendinefnd frá vinabæ okkar Murmansk í Rússlandi en samningur um vinabæjartengsl bæjanna var undirritaður 1994. Heimsóknin er helguð málefnum barna og sérstaklega aðgerðum gegn ofbeldi á börnum. Í hópnum eru saksóknari, dómari sálfræðingur, lögregluþjónn og tveir fullt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrktartonleikar-kvennakorsins
Styrktartónleikar Kvennakórsins Kvennakór Akureyrar stóð fyrir tónleikum þann 4. desember sl. til styrktar starfi Mæðrastyrksnefndar á Akureyri. Kórinn fékk til liðs við sig Karlakór Eyjafjarðar, Stúlknakór Akureyrarkirkju, undirleikarana Stefán Ingólfsson og Halla Gulla. Kynnir var Snorri Guðvarðsson. Allir sem komu a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatonleikar-glerarkirkju
Jólatónleikar Glerárkirkju Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju verða haldnir sunnudaginn 18. desember kl. 17 í kirkjunni. Á efnisskránni er tónlist úr ýmsum áttum, tengd aðventu og jólum. Má þar meðal annars nefna Jólavers eftir Birgi Helgason, Sleðaferðina eftir Leroy Anderson og Agnus Dei eftir Charles Gounod. Einnig gef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/isskulptur-a-radhustorgi
Ísskúlptúr á Ráðhústorgi Ósvikin jólastemning ríkir nú á Akureyri og verður væntanlega ys og þys í bænum um helgina. Laugardaginn 17. desember verða tveir meistarakokkar á Ráðhústorgi frá kl. 15 og ætla þeir að höggva og skera út klakastyttur af ýmsum gerðum. Þetta eru þeir félagar Kjartan Marinó og Hallgrímur Friðrik,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hjallastefnan-i-holmasol
Hjallastefnan í Hólmasól Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri og Margrét Pála Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. undirrituðu í dag, mánudaginn 19. desember, samning um rekstur leikskólans Hólmasólar við Helgamagrastræti. Samningurinn gildir til 31. desember 2009. Frá undirritun samningsins í da...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brudkaupid-heldur-afram
Brúðkaupið heldur áfram Vegna gríðarlegrar eftirspurnar eftir miðum á Fullkomið brúðkaup og fjölda áskorana hefur seinni hluti leikársins 2005-2006 hjá LA verið endurskipulagður og stokkaður upp. Ákveðið hefur verið að halda áfram sýningum á Fullkomnu brúðkaupi í janúar og febrúar. Til að gera þessa breytingu möglega þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/asiuver-vid-haskolann-a-akureyri
Asíuver við Háskólann á Akureyri Þann 16. desember sl. var haldin opnunarhátíð í Háskólanum á Akureyri í tilefni tímamótaviðburða í uppbyggingu og þróun asískra fræða á Íslandi. Skrifað var undir samstarfssamning milli Háskólans á Akureyri (HA) og Háskóla Íslands (HÍ) um kennslu í kínversku og kínverskum fræðum sem ski...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolastefnumot
Jólastefnumót Efnt verður til sérstaks jólastefnumóts að Borgum við Háskólann á Akureyri, 28. desember frá kl. 15-17. Markmiðið með stefnumótinu er að efla tengsl skóla og atvinnulífs með kynningu á því sem Eyjafjörður og Akureyri hafa að bjóða. Þannig geta nemendur betur áttað sig á þeim tækifærum sem svæðið býr yfir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minjasafnid-a-akureyri
Minjasafnið á Akureyri Minjasafnið á Akureyri er opið fimmtudaginn 29. og föstudaginn 30. desember kl. 14-16. Í safninu er sýningin Af norskum rótum sem fjallar um framleiðslu á einingahúsum í Noregi kringum aldamótin 1900 og næstu áratugina á eftir. Sýningin er í myndum og máli og byggir hún að verulegu leyti á samnef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gamastod-og-sorphaugar-um-hatidar
Gámastöð og sorphaugar um hátíðar Það fellur til talsvert af umbúðapappír og rusli um jól og áramót. Opnunartími sorpmóttökustaða verður sem hér segir næstu daga. Gámastöð: Sorphaugar: 23. desember opið kl. 12.30-18.30 23. desember opið 8-18 24. desember opið kl. 9-13 24. desember opið 9-12 25. desember lokað 25. desem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolastefnumot-i-dag
Jólastefnumót í dag Í dag, miðvikudaginn 28. desember, verður haldið sérstakt jólastefnumót í rannsóknarhúsinu Borgum við Háskólann á Akureyri. Stefnumótið stendur yfir frá kl. 15-17. Til stefnumótsins er boðið fyrirtækjum og stofnunum sem hafa starfsemi sína í Eyjafirði og háskólafólki, sem annað hvort stundar nám sit...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skjoldur-vid-hlidarskola
Skjöldur við Hlíðarskóla Fasteignir Akureyrarbæjar hafa nýlokið viðamiklum endurbótum og lagfæringum á einbýlishúsinu Miðvík í Skjaldarvík. Húsið er um 180 m² steinsteypt á einni hæð. Þar mun Hlíðarskóli starfrækja sérkennsludeild og hafa endurbæturnar verið miðaðar við þarfir þeirrar starfsemi. Starfseminni hefur veri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyir-eigendur-vikudags
Nýir eigendur Vikudags Hildingur ehf. sem er dótturfélag KEA, Kristján Kristjánsson, Birgir Guðmundsson og Ásprent Stíll hafa stofnað útgáfufélag sem keypt hefur allar eignir Vikudags á Akureyri og mun félagið hefja rekstur blaðsins frá og með áramótum. Félagið er í meirihlutaeigu Hildings ehf. Kristján Kristjánsson, b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gudthjonustur-og-samverustundir
Guðþjónustur og samverustundir Guðþjónustur voru haldnar yfir hátíðarnar á öllum heimilum Öldrunarheimila Akureyrar og voru almennt vel sóttar. Eins komu góðir gestir bæði frá Hjálpræðishernum og Hvítasunnusöfnuðinum og áttu góða stund með íbúum og þeirra aðstandendum. Ekki má heldur gleyma þeim sem hafa glatt okkur me...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fasteignaverd-haekkar
Fasteignaverð hækkar Einbýlishús hækkuðu í verði um liðlega fjórðung á Akureyri á nýliðnu ári og íbúðir í fjölbýli hækkuðu um fimmtung. Fermetraverð er nánast það sama í einbýli og fjölbýli. Kaupsamningum vegna viðskipta með íbúðir í fjölbýlishúsum á Akureyri fjölgaði um 65% á síðasta ári þannig að líf og fjör var á ma...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatrjam-safnad-til-endurvinnslu
Jólatrjám safnað til endurvinnslu Að loknum jólum gengst framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar fyrir söfnun jólatrjáa til endurvinnslu. Markmiðið er að minnka magn sorps sem fer til urðunar og endurnýta jólatrén, um leið og bæjarbúum er gert hægara um vik að losa sig við trén. Jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu verða kur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnad-jolastefnumot
Vel heppnað jólastefnumót Miðvikudaginn 28. desember kom saman á Borgum fjöldi stjórnenda úr atvinnulífinu á Akureyri og háskólafólk sem hefur áhuga á að búa á Akureyri að námi loknu. Tilgangurinn var að háskólanemar fengju tækifæri til að hitta forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana á svæðinu til að gera sér betur grein ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyi-leikskolinn-holmasol
Nýi leikskólinn Hólmasól Nýr leikskóli er í byggingu við Helgamagrastræti og hefur hann hlotið nafnið Hólmasól. Byggingin er 1.020m2 að grunnfleti. Megineinkenni hússins taka mið að nánasta umhverfi og verður húsið skemmtileg umgjörð um metnaðarfullt leikskólastarf. Við hönnun byggingarinnar var lögð áhersla á fjölbrey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ka-fyrirmyndafelag
KA fyrirmyndafélag Knattspyrnufélag Akureyrar – KA – verður útnefnt fyrirmyndarfélag Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á 78. afmælisdegi KA nk. sunnudag, 8. janúar, í KA-heimilinu á Akureyri og hefst athöfnin kl. 14. Ellert Schram, forseti Íþrótta- og Ólympíusambandsins, mun afhenda forráðamönnum KA viðurkenningarskj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnad-i-hlidarfjalli-fljotlega
Opnað í Hlíðarfjalli fljótlega... Nú er unnið að því hörðum höndum í Hlíðarfjalli að undirbúa opnun svæðisins. Ákveðið hefur verið að nýta miðvikudaginn 11. janúar til að framleiða meiri snjó en að öllum líkindum verða brautir opnaðar á fimmtudag. Snjóframleiðslukerfið er í fullum gangi og allar byssurnar blása úr sér ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laganemar-ha-sigrudu
Laganemar HA sigruðu Lið lagadeildar Háskólans á Akureyri sigraði, eftir jafna og spennandi keppni, lið lagadeildar Háskóla Íslands í undankeppni Jessup málflutningskeppninnar sem haldin var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi. Sigurliðið stefnir núna í hina virtu aðalkeppni Jessup sem haldin verður í Washingtonborg í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afhending-leiguibuda-i-vallartuni
Afhending leiguíbúða í Vallartúni Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á húsnæðið að Vallartúni 2. Húsið er 412,6 fm í því eru sex einstaklingsíbúðir. Hver íbúð er um 60 fm ásamt sameign og verða þær leigðar út í félagslega kerfinu. Verktaki að húsinu er Byggingarfélagið Hyrna ehf. Byggingarkostnaður hverrar íbúðar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/happdraetti-vidburdadagatalsins
Happdrætti viðburðadagatalsins Dregið hefur verið í happdrætti viðburðadagatalsins sem Akureyrarbær gaf út síðastliðið haust. Vinningarnir voru ekki af verri endanum, meðal annars sundkort, miðar í leikhús og vetrarkort í Hlíðarfjall. Vinningsnúmerin eru þessi: 2.328 Tíu miða kort í Sundlaug Akureyrar 11.848 Þriggja má...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-vetrarithrottir
Ráðstefna um vetraríþróttir Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) boðar til ráðstefnu um vetraríþróttir 26. og 27. janúar 2006 á Hótel KEA á Akureyri. Ágætt færi er nú í Hlíðarfjalli og verður ráðstefnugestum boðið á skíði að ráðstefnu lokinni, frá föstudegi til sunnudags. Ráðstefnugestir greiða 8.000 kr. í þátttökugjald....
https://www.akureyri.is/is/frettir/deiliskipulag-a-dofinni
Deiliskipulag á döfinni Um þessar mundir er lítið um lausar byggingarlóðir á Akureyri, hvort heldur er fyrir íbúðar- eða atvinnuhúsnæði. Um mitt ár verða væntanlega auglýstar nokkrar atvinnulóðir í Krossaneshaga, sem verða byggingarhæfar síðar á árinu. Hjá umhverfisdeild er nú unnið að deiliskipulagi tveggja nýrra íbúð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aefingar-hafnar-a-mariubjollunni
Æfingar hafnar á Maríubjöllunni Æfingar eru hafnar hjá LA á Maríubjöllunni eftir Vassily Sigarev. Hér er um að ræða kraftmikið og átakanlegt nútímaverk sem vakið hefur mikla athygli þar sem það hefur verið sýnt. Leiksýningin verður fyrsta uppsetningin í nýju leikrými Leikfélags Akureyrar, sem enn hefur ekki hlotið nafn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-barna-og-unglingabokmenntir
Málþing um barna- og unglingabókmenntir Fimmtudaginn 19. janúar verður haldið málþing um barna- og unglingabókmenntir í Háskólanum á Akureyri á vegum kennslugagnadeildar BSHA og kennaradeildar HA. Anna Heiða Pálsdóttir bókmenntafræðingur, Dagný Kristjánsdóttir prófessor við HÍ og Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur, fly...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hjallastefnan-a-akureyri
Hjallastefnan á Akureyri Kynningarfundur um Hjallastefnuna og um fyrirhugaða starfsemi Hólmasólar verður haldinn í Brekkuskóla kl. 17.30, fimmtudaginn 19. janúar. Áhugasamir foreldrar svo og þeir sem áhuga kunna að hafa á starfi við Hólmasól eru hvattir til að mæta á fundinn. Margrét Pála Ólafsdóttir, höfundur Hjallast...
https://www.akureyri.is/is/frettir/pmt-foreldrafaerni
PMT - foreldrafærni Akureyrarbær hefur sett á laggirnar þjónustu við börn og foreldra undir heitinu PMT – foreldrafærni (Parent Management Training). Um er að ræða þjónustu við börn, foreldra og skóla sem hefur það meginmarkmið að fyrirbyggja alvarlega hegðunarerfiðleika og taka markvisst á hegðun barna með aðferðum PM...
https://www.akureyri.is/is/frettir/veidimenn-a-hverfanda-hveli
Veiðimenn á hverfanda hveli? Mánudaginn 23. janúar heldur Jónas G. Allansson, doktorsnemi í mannfræði við Aberdeenháskólann í Skotlandi, erindið "Veiðimenn á hverfandahveli?" í rannsóknarhúsinu Borgum á Akureyri. Í erindi sínu fjallar Jónas um tengsl og stöðu atvinnuveiðimanna og s.k. frístundaveiðimanna á norðausturst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leiklistanamskeid-la
Leiklistanámskeið LA Leikfélag Akureyrar stendur fyrir leiklistarnámskeiðum í janúar og febrúar. Kennt er í ólíkum aldurshópum fyrir börn og fullorðna. Farið verður í undirstöðuatriði leiklistar en námskeiðið er byggt upp á leikjum, æfingum, spuna og trúðatækni. Námskeiðin miðast að að virkja og efla ímyndunaraflið, læ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/beint-til-koben
Beint til Köben Iceland Express hefur beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í sumar og verður fyrsta ferðin farin 29. maí eftir því sem segir í fréttatilkynningu frá flugfélaginu. Vikulegar ferðir verða fram á haustið og jafnvel lengur. "Akureyri hefur stundum verið kölluð danskasti bær á Íslandi og þess vegna ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skiljast-leidir-rikis-og-kirkju-i-noregi
Skiljast leiðir ríkis og kirkju í Noregi? Nú í vikunni verður lögð fram skýrsla um framtíðarskipan á sambandi ríkis og kirkju í Noregi. Samkvæmt heimildum norskra fjölmiðla leggur meirihluti nefndarinnar til að horfið verði frá núverandi skipulagi en lítil samstaða er innan hópsins um nýskipan mála. Í erindi sínu á Lög...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-framkvaemdastjori-haskolaskrifstofu
Nýr framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu Ólafur Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu Háskólans á Akureyri (HA). Ólafur brautskráðist frá Háskólanum í Bergen, með cand. real. í fiskifræði árið 1982 og hefur síðan starfað hjá Hafrannsóknastofnun og sem framkvæmdastjóri hjá Fiskeldi Eyjafjarðar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brahms-og-mozart-a-tonleikum
Brahms og Mozart á tónleikum Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á Akureyri sunnudaginn 29. janúar kl. 16.00. Á efnisskrá eru tvö verk: Sinfónía nr. 1 í c moll eftir Johannes Brahms og óbókonsert í C-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Einleikari á óbó er Daði Kolbeinsson og stjórnandi er Guðmu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-fjarhagsupplysingakerfi-hja-akureyrarbae
Nýtt fjárhagsupplýsingakerfi hjá Akureyrarbæ Starfsfólk starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar hefur undanfarið setið námskeið þar sem kennd er notkun og virkni SAP-launakerfisins. Bæjarfélagið ákvað eftir viðamikið útboð á síðasta ári að fara í samstarf við Nýherja - nú Applicon, nýtt dótturfélag Nýherja - um hönnun á hei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tvisvar-i-viku-milli-akureyrar-og-koben
Tvisvar í viku milli Akureyrar og Köben Beint áætlunarflug Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar hefst þann 30. maí nk. Frá þeim degi og fram á haustið verður flogið tvisvar í viku milli Akureyrar og Kaupmannahafnar, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þessar fyrirætlanir flugfélagsins voru kynntar á blaðamannafun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningar-vid-ithrottafelogin
Samningar við íþróttafélögin Í dag, mánudaginn 30. janúar, voru undirritaðir rekstrarsamingar til þriggja ára á milli Akureyrarbæjar og nokkurra íþróttafélaga innan Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA). Samningarnir gilda frá 1. janúar 2006 til 31. desember 2008. Með gerð þessara samninga er verið að stuðla að því að félög...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarhus-og-tonlistarskoli
Menningarhús og Tónlistarskóli Hinn 20. janúar sl. var haldinn kynningarfundur á vegum Fasteigna Akureyrar með helstu byggingarverktökum bæjarins um fyrirhugaðar framkvæmdir við Menningarhús og Tónlistarskóla Akureyrar. Farið var yfir alteikningar af húsinu, helstu stærðir í magntölum og fyrirhuguð útboð. Gert er ráð f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afslattur-af-fasteignaskatti-2006
Afsláttur af fasteignaskatti 2006 Bæjarráð samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 2. febrúar "Reglur um fastan afslátt og tekjutengdan viðbótarafslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum hjá Akureyrarbæ árið 2006." Reglurnar fela í sér verulega hækkun á afslætti til þeirra sem undir þær heyra þar sem fjöl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldarafmaeli-verkalydsfelaga
Aldarafmæli verkalýðsfélaga Þann 6. febrúar 2006 verða 100 ár liðin frá stofnun Verkamannafélags Akureyrar en það félag er forveri margra þeirra verkalýðsfélaga sem nú starfa á Eyjafjarðarsvæðinu. Stofnun Verkamannafélags Akureyrar árið 1906 markar upphaf samfellds starfs verkalýðsfélaga á Akureyri og annars staðar við...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018
AÐALSKIPULAG AKUREYRAR 2005-2018 Aðalskipulag Akureyrar 2005 – 2018, sem hér er lagt fram, er það fimmta í röðinni frá því fyrsta aðalskipulag bæjarins var samþykkt árið 1927. Áfram er unnið með þær áherslur sem lagt var upp með í aðalskipulaginu frá 1998 um sjálfbæra þróun og umhverfisstefnu í anda Staðardagskár 21. A...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hrafnabjorg-tillaga-ad-breytingum-a-deiliskipulagi
Hrafnabjörg, tillaga að breytingum á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Löngumýri/-Hrafnabjörg. Um er að ræða breytta tillögu m.v. tillögu sem auglýst var 17. október 2005. Breyt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/beint-flug-fra-akureyri
Beint flug frá Akureyri Ferðaskrifstofa Akureyrar skipuleggur á þessu ári fjölda ferða til nokkurra áfangastaða í Evrópu í beinu flugi frá Akureyri. Á döfinni er einnig aukið samstarf við Úrval-Útsýn sem meðal annars mun nýtast íþróttahópum á Norðurlandi. Beint flug frá Akureyri til áfangastaða í Evrópu hefur notið mik...
https://www.akureyri.is/is/frettir/endurbaetur-skolaloda
Endurbætur skólalóða Undanfarin ár hafa Fasteignir Akureyrarbæjar unnið markvisst að endurbótum á lóðum leikskóla og skóla í bænum. Stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið árið 2008. Endurbæturnar felast meðal annars í endurnýjun leiktækja og öryggisþátta í kringum þau, ásamt því sem lagðir hafa verið hjólastígar o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-1200-manns-fa-launahaekkun
Um 1.200 manns fá launahækkun Fimmtudaginn 2. febrúar samþykkti bæjarráð að hækka laun félagsmanna í Kili, Einingu-Iðju og Félagi leikskólakennara frá og með 1. janúar 2006. Nú þegar er búið að greiða leikskólakennurum og hluta félagsmanna í Kili og Einingu-Iðju þessa hækkun en aðrir fá greitt um miðjan mánuðinn. Þessi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/112-dagurinn-og-barnavernd
112 dagurinn og barnavernd Laugardaginn 11.2. verður haldið upp á hinn svokallaða 112 dag í annað sinn. Markmiðið er að þeir aðilar sem nýta sér þjónustu 112 geti vakið athygli á starfi sínu þennan dag. Barnavernarnefnd Eyjafjarðar hefur samstarf við 112 með þeim hætti að 112 tekur við símhringingum frá fólki sem vill ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolnota-hus-i-hrisey
Fjölnota hús í Hrísey Fyrirhugað er að byggja fjölnota íþróttahús í Hrísey. Hönnun stendur nú yfir og er gert ráð fyrir því að útboð fari fram í apríl. Húsinu verður valinn staður í nálægð við sundlaug og skóla. Gert er ráð fyrir samnýtingu búningsaðstöðu fyrir íþróttahúsið og sundlaugina. Hönnun hússins er í höndum Ko...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ritun-sogunnar-heldur-afram
Ritun sögunnar heldur áfram Fyrr í dag skrifuðu Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, og Jón Hjaltason, sagnfræðingur, undir samning um ritun fimmta bindis Sögu Akureyrar sem jafnframt verður síðasta bindið sem gert er ráð fyrir að komi út að svo stöddu. Miðað er við að þetta bindi nái yfir tímabilið frá 1940 til 1962 e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugur-i-fka-konum-nordan-heida
Hugur í FKA-konum norðan heiða Að undanförnu hefur verið unnið að því að virkja hóp norðlenskra kvenna innan Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) með það í huga að halda uppi reglulegri starfsemi innan félagsins á Norðurlandi. Fyrsti fundur FKA norðan heiða var haldinn á Friðriki V á Akureyri föstudaginn 10. febrúar un...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mariubjallan-frumsynd
Maríubjallan frumsýnd Fimmtudaginn 16. febrúar verður leikritið Maríubjallan frumsýnt í Rýminu, nýju leikhúsi Leikfélags Akureyrar. Maríubjallan er kraftmikið og magnað nútímaverk eftir Vassily Sigarev. Leikritið er sýnt í Rýminu sem kemur til viðbótar við starfsemi leikhússins í Samkomuhúsinu. Rýmið, sem er til húsa a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radgjof-um-fjarmal-heimilanna
Ráðgjöf um fjármál heimilanna Akureyrarbær hefur nýlega endurnýjað samning sinn við Ráðgjafastofu heimilanna en þetta er þriðja árið sem slíkur samningur er gerður. Samningurinn felur í sér að fjármálaráðgjafar Ráðgjafastofunnar koma til Akureyrar hálfsmánaðarlega og hafa aðsetur sitt á Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haekkun-a-nidurgreidslum-vegna-daggaeslu
Hækkun á niðurgreiðslum vegna daggæslu Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 9. febrúar sl. tillögu skólanefndar um hækkun á niðurgreiðslum til foreldra vegna daggæslu barna í heimahúsum. Hér er um að ræða hækkun sem nemur 40% til foreldra sem eru giftir eða í sambúð og 74% til einstæðra foreldra. Með þessari ákvörðun ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/staerdfraedikeppni-grunnskolanema
Stærðfræðikeppni grunnskólanema Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema verður haldin í Menntaskólanum á Akureyri 22. febrúar og hefst klukkan 16.00. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi stærðfræðikeppni fyrir nemendur 8., 9. og 10. bekk grunnskólanna er haldin á Norðurlandi. Það er Flensborgarskóli í Hafnarfirði sem stendur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sigridur-synir-i-frakklandi
Sigríður sýnir í Frakklandi Sigríður Ágústsdóttir, leirlistarmaður sem búið hefur á Akureyri síðastliðið sex og hálft ár, hefur undanfarna tvo mánuði dvalið í alþjóðlegri vinnustofu í Vallauris í Suður Frakklandi. Vallauris er aldagamall bær leirlistarmanna, þar dvaldi og starfaði Picasso um miðja síðustu öld og þar va...
https://www.akureyri.is/is/frettir/60-ara-afmaelistonleikar
60 ára afmælistónleikar Þann 26. ferbrúar nk. verða veglegir tónleikar haldnir í Glerárkikju. Tilefnið er 60 ára afmæli Tónlistarkólans á Akureyri og munu nemendur skólans sem komnir eru langt í námi leika þar með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, þar af nokkrir þeirra sem einleikarar. Samstarf hljómsveitarinnar og Tónli...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagny-linda-i-23-saeti
Dagný Linda í 23. sæti Akureyringurinn Dagný Linda Kristjánsdóttir náði glæsilegum árangri í gær þegar hún lenti í 23. sæti í risasvigi á Ólympíuleikunum í Tórínó. Dagný kom í mark á tímanum 1:34.56, 2.09 sekúndum á eftir sigurvegarnum Michaelu Dorfmeister frá Austurríki. Önnur varð Janica Kostelic frá Króatíu á 1:32.4...
https://www.akureyri.is/is/frettir/namsmenn-a-akureyri-motmaela
Námsmenn á Akureyri mótmæla Nemendur í Háskólanum á Akureyri gengu úr tíma nú í morgun til að mótmæla fjársvelti háskólans og námsmenn í Menntaskólanum á Akureyri munu mótmæla styttingu náms til stúdentsprófs á morgun. Í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum nemenda HA segir orðrétt: „Staðan í Háskólanum á Akureyri: Metnaða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/husid-vard-rymi
Húsið varð Rými Fasteignir Akureyrar hafa nýlega lokið breytingum á húsnæðinu að Hafnarstræti 73 sem áður hét Húsið en hefur núna hlotið nafnið Rýmið. Leikfélag Akureyrar tók við húsnæðinu í ársbyrjun. Í grunninn er Rýmið „svartur kassi“ sem hægt er að nota á ólíka vegu til leiksýninga, meðal annars er hægt að raða áho...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-og-hrisey-tillogur-ad-deiliskipulagi
Akureyri og Hrísey, tillögur að deiliskipulagi Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. og 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. eftirtaldar tillögur að endurskoðun deiliskipulags og nýjum deiliskipulagsáætlunum: Hesthúsahverfið Hlíðarholt, endurskoðun Helstu breytingar frá fyrra skip...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-a-vetrarhatid-i-reykjavik-2
Akureyri á Vetrarhátíð í Reykjavík Sú skemmtilega hefð hefur skapast að listamenn frá Akureyri heimsæki Vetrarhátíð í Reykjavík og þeir láta ekki sitt eftir liggja að þessu sinni. Hlynur Hallson sýnir verkið „Græna vatnið í Worpswede“ á vegg Ráðhússins í Reykjavík og er opun sýningarinnar meðal upphafsatriða Vetrarhátí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/syningarlok-i-listasafninu
Sýningarlok í Listasafninu Fyrstu sýningu ársins í Listasafninu á Akureyri lýkur laugardaginn 25. febrúar. Sýningin „Hraunblóm“ er unnin í samstarfi við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og hefur að geyma verk eftir Danina Else Alfelt og Carl-Henning Pedersen og félaga þeirra Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson. Í lok sí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kardemommubaerinn-i-freyvangi
Kardemommubærinn í Freyvangi Laugardaginn 25. febrúar verður frumsýnt í Freyvangi leikritið Kardemommubærinn. Flestir þekkja þetta fræga leikrit og helstu persónur þess sem Torbjörn Egner skapaði af sinni alkunnu snilld. Má segja að þar séu á ferð góðkunningjar barna jafnt sem fullorðinna um heim allan. Aðstandendur vo...
https://www.akureyri.is/is/frettir/odyrast-a-akureyri
Ódýrast á Akureyri Í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi, miðvikudagskvöldið 22. febrúar, var gerður samanburður á kostnaði við að hafa börn í leikskóla og grunnskóla hjá átta stórum sveitarfélögum. Er skemmst frá því að segja að kostnaðurinn reyndist vera lægstur hjá Akureyrarbæ og þegar kostnaður við fæði í skólunum v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hverfisnefnd-lunda-og-gerdahverfis
Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis Fimmtudagskvöldið 23. febrúar var stofnuð hverfisnefnd fyrir Lunda- og Gerðahverfi. Stofnfundurinn var haldinn í Lundarskóla og var ágætlega sóttur af íbúum hverfanna. Þetta er fjórða hverfisnefndin sem stofnuð er á Akureyri en fyrir eru nefndir fyrir Oddeyri, Gilja- og Síðuhverfi. Í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forsala-hafin-a-litlu-hryllingsbudina
Forsala hafin á Litlu hryllingsbúðina Hafin er forsala á söngleikinn „Litla hryllingsbúðin“ sem LA mun frumsýna 24. mars nk. Boðið er upp á sérstakt tilboð á fyrstu 1.000 miðunum sem seljast í forsölu, því þá fylgir geisladiskurinn með tónlistinni úr sýningunni í kaupbæti. Innan skamms kemur út geisladiskur með tónlist...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-hverfisnefnd-i-burdarlidnum
Ný hverfisnefnd í burðarliðnum Stofnfundur hverfisnefndar í Holta- og Hlíðahverfi verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 2. mars, klukkan 20 í Glerárskóla. Íbúar hverfanna eru hvattir til að mæta á fundinn og láta sig varða málefni nánasta umhverfis síns. Dagskrá fundarins verður þessi: Setning fundar og kynning á hugmy...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nakid-folk-i-thusundatali
Nakið fólk í þúsundatali Laugardaginn 4. mars verða tvær nýjar sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri. Þar er annars vegar um að ræða sýningu á myndum Spencers Tunick af nöktu fólki í þúsundatali og hins vegar skúlptúrinnsetningu Höllu Gunnarsdóttur um mannslíkamann. Verk fárra listamanna hafa vakið meiri athygli á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oskudagur-a-akureyri
Öskudagur á Akureyri Krakkar á öllum aldri héldu upp á öskudadaginn í dag á Akureyri. Gengið var á milli fyrirtækja, sungið fyrir góðgæti í poka, og loks var að venju kötturinn sleginn úr tunninni á Ráðhústorgi. Veður var með betra móti en frostið beit í kinn. Myndirnar hér að neðan tala sínu máli um stemninguna.
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-launakerfi-i-notkun
Nýtt launakerfi í notkun Starfsmenn Akureyrarbæjar taka eftir nýju útliti á launaseðlum sínum þegar þeir opna launaumslög sín um þessi mánaðamót. Unnið hefur verið að innleiðingu á nýju SAP-mannauðskerfi síðustu mánuði ásamt fjárhags-, verk- og sölukerfi. Launakerfið hefur nú verið tekið í notkun og er þar um að ræða f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afe-um-alverid
AFE um álverið Í gær var sem kunnugt er undirritað samkomulag um að hefja ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík. Af því tilefni hefur stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) sent frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu: „Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar fagnar ákvörðun Alcoa um...