Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumartonleikar-2
Sumartónleikar Fimmtu og síðustu tónleikarnir í röðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 31.júlí kl. 17. Flytjendur tónlistar að þessu sinni verða félagar í Kór Áskirkju í Reykjavík. Á efnisskrá verða verk eftir: Sigfús Einarsson, Jónas Helgason, Inga T. Lárusson, Bjarna Þorsteinsson, Þorkel S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fegurstu-gardar
Fegurstu garðar Tækni og umhverfissvið Akureyrarbæjar – umhverfisráð óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum fyrir góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokka Flokkur nýrri garða. Flokkur eldri garða. Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa. Flokkur fyrirtækja. Flokkur stofnana. Fyri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverkshatidin-hrafnagili
Handverkshátíðin Hrafnagili Handverkshátíðin á Hrafnagili verður haldin í þrettánda sinn dagana 4.-7. ágúst n.k. Sýningin hefur þróast í gegnum árin og Eyjafjarðarsveit lítur nú svo á að tilgangur með Handverkshátíð sé ekki einungis að endurvekja áhuga þeirra ríku handverkshefðar sem áður var til staðar heldur einnig a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/soguganga-2
Söguganga Næstkomandi sunnudag, 7. ágúst, kl. 14, býður Minjasafnið á Akureyri upp á sögugöngu um Glerárþorp. Glerárþorp varð hluti af lögsagnarumdæmi Akureyrar árið 1955 en var þar áður í Glæsibæjarhreppi. Á fyrstu öldum hefur landsvæðið líklega tilheyrt landnámsjörðinni Glerá, en síðar Lögmannshlíð og Krossanesi. Út ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fiskidagurinn-mikli
Fiskidagurinn mikli Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð ár hvert á fyrsta laugardegi eftir Verslunarmannahelgina. Fiskverkendur og fleiri aðilar í byggðarlaginu bjóða landsmönnum og gestum landsins í margréttaða fiskveislu milli kl 11.00 og 17.00. Markmiðið með deginum er að fá sem flesta til að h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/django-jazztonleikar
Djangó-jazztónleikar Djasstríóið Hrafnaspark á Akureyri í samstarfi við DjangJazz Festival Akureyri hefur fengið Andreas Öberg frá Svíþjóð til landsins sem mun leika með Hrafnasparki á tónleikum í Ketilhúsinu laugardagskvöldið 6. ágúst kl. 21.30. Andreas hefur þrátt fyrir ungan aldur öðlast sess sem einn af færustu dja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/naustahverfid-vinsaelt
Naustahverfið vinsælt Alls bárust 193 umsóknir frá einstaklingum og byggingarfyrirtækjum um lóðir undir 430 íbúðir í 2. skipulagsáfanga Naustahverfis, en umsóknarfrestur rann út 27. júlí sl. Þriðjudaginn 9. ágúst verður dregið um 17 einbýlishúsalóðir milli 92 einstaklinga sem sóttu um þær. Í skipulagsáfanganum sem ligg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/isafold
Ísafold Kammersveitin Ísafold mun leggja af stað í sína árlegu tónleikaferð um landið n.k. miðvikudag, 10. júní. Á ferð sinni um landið mun Kammersveitin meðal annars spila í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 11. ágúst kl. 20. Kammersveitin Ísafold er skipuð ungu tónlistarfólki og sérhæfir sig í flutningi tó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/evropukeppni-ungra-visindamanna
Evrópukeppni ungra vísindamanna Í næsta mánuði, nánar tiltekið þann 17. september, munu þrjár ungar stúlkur frá Akureyri halda til Moskvu í Rússlandi þar sem þær munu taka þátt í evrópukeppni ungra vísindamanna. Stúlkurnar tóku þátt í keppninni Ungir Vísindamenn, sem fram fór í Reykjavík í vor, og sigruðu hana með verk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjovelar-i-hlidarfjalli
Snjóvélar í Hlíðarfjalli Klukkan 12.15 í dag, fimmtudaginn 11. ágúst, verður tekin fyrsta skóflustungan að fyrsta snjóframleiðslukerfi á Íslandi í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Í framhaldinu verður hafist handa við lagningu veitukerfis um skíðasvæðið sem verður um 2.600 metrar að lengd, en um kerfið verður hægt að dæla ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arsskyrsla-akureyrarbaejar-2004
Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2004 Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2004 er komin út og hefur verið stytt mikið frá því sem áður var. Ákvörðun um að breyta skýrslunni var tekin í kjölfar könnunar sem gerð var á lestri hennar meðal bæjarbúa. Markmiðið með styttingu skýrslunnar var að gera hana aðgengilegri og um leið va...
https://www.akureyri.is/is/frettir/trio-benjamin-koppel
Trio Benjamin Koppel Hið glæsilega og fjölbreytta jazz sumar á Listasumri 2005 er að renna sitt kröftuga skeið og nálgast nú markið á góðum lokaspretti eftir einstaklega skemmtilegt sveifluhlaup. Á þessum síðasta Heita fimmtudegi sumarsins er það danski saxófónleikarinn Benjamin Koppel sem kórónar norræna jazz samvinnu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fostudagshadegistonleikar-2
Föstudagshádegistónleikar Á morgun, föstudaginn 19.ágúst verða tónleikar í Ketilhúsinu kl. 12. Listamennirnir sem þar munu koma fram eru: Guido Bäumer, saxófón og Aladár Rácz, píanó. Þetta er létt og skemmtileg frönsk tónlist fyrir alt-saxófón og píanó með dálitlu suður-amerísku eða suðrænu ívafi. Nokkur verkanna tengj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bifreidastaedaklukkur-bifreidastaedaklukkur
Bifreiðastæðaklukkur - Bifreiðastæðaklukkur Frá 26. ágúst 2005 verður stýring á nýtingu á bílastæðum í miðbænum á Akureyri með bifreiðastæðaklukkum í stað stöðumæla. Þegar lagt verður í bílastæðin í miðbænum er skylt að hafa bifreiðastæðaklukku á mælaborðinu sem sýnir hvenær bílnum var lagt í stæðið. Heimiluð tímalengd...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka
Akureyrarvaka Laugardaginn 27. ágúst verður haldin Akureyrarvaka, afmælishátíð Akureyrarbæjar og lokahátíð Listasumars 2005. Hátíðin verður sett í upplýstum Lystigarðinum á föstudagskvöldi kl. 21, en heldur svo áfram með afar fjölbreyttri dagskrá allan laugardaginn og fram á nótt. Um 50 - 60 viðburðir eru þegar komnir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/syningar-a-akureyrarvoku
Sýningar á Akureyrarvöku Á Akureyrarvöku, laugardaginn 27.ágúst, verður að vana mikið um að vera í menningarlífinu, en þá verða opnaðar að minnsta kosti fjórar sýningar. Kl. 14:00 opnar Arnar Tryggvason myndlistarsýninguna "Húsin í bænum" á Café Karólínu. Þetta er fyrsta einkasýning Arnars sem útskrifaðist sem grafísku...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fegurstu-gardar-2
Fegurstu garðar Í Lystigarðinum í kvöld, föstudagskvöldið 26.ágúst kl. 21.00, mun umhverfisráð veita viðurkenningar fyrir fallega garða. AÐ þessu sinni hefur dómnefnd valið, eftir ábendingum frá almenningi, fjóra garða sem hljóta viðurkenningu. Þeir garðar sem fá þetta árið viðurkenningu umhverfisráð fyrir fallega garð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umhverfisthing-ungmenna
Umhverfisþing ungmenna Umhverfisþing ungmenna á norðurslóðum – Youth Eco Forum 2005 verður haldið á Akureyri dagana 27. ágúst til 1. september. Þingið er liður í starfi Northern Forum samtakanna, samtaka ríkja og borga á norðurslóðum, sem Akureyri á aðild að. Þátttakendur er ungt fólk á aldrinum 16 – 20 ára alls tæpleg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hjolabretta-og-linuskautagardur
Hjólabretta- og línuskautagarður Sl. laugardardag, 27. ágúst, opnaði Akureyrarbær með formlegum hætti nýja og glæsilega hjólabretta- og línuskautaaðstöðu sem staðsett er á útivistarsvæðinu sunnan Borga, rannsóknarhúss Háskólans á Akureyri. Það var Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri Akureyrarbæjar sem klippti á borðann ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eldspuandi-baejarstjori-a-akureyrarvoku
Eldspúandi bæjarstjóri á Akureyrarvöku Mikil og góð þátttaka var á Akureyrarvöku um helgina, stanslaus straumur fólks var á þá viðburði sem í boði voru jafnt innan sem utan dyra. Meðal stærri viðburða má nefna opnun yfirlitssýningar á verkum Jóns Laxdal, opnun á safnarasýningunni "Alveg sér viska" í Ketilhúsinu og drau...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokaathofn-umhverfisthings-ungmenna
Lokaathöfn umhverfisþings ungmenna Eins og greint var frá í síðustu viku fer nú fram, hér á Akureyri, umhverfisþing ungmenna á norðurslóðum – Youth Eco Forum 2005. Þátttakendur sem samtals eru um 50 eru á aldrinum 16- 20 ára og koma frá Akureyri, Alaska, Chukotka, Khanty-Mansiysk, Sakha, Pétursborg, Vologda og Hokkaido...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimsokn-fra-klakksvik
Heimsókn frá Klakksvík Miðvikudaginn 31. ágúst sl. kom sendinefnd á vegum sveitarfélagsins Klakksvíkur í Færeyjum í heimsókn til Akureyrar. Nefndin hafði verið á ferð um höfuðborgarsvæðið en óskaði sérstaklega eftir því að fá að koma í heimsókn til Akureyrar þar sem stærð sveitarfélaganna væri ekki ósvipuð og oft samsk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sameining-sveitarfelaga
Sameining sveitarfélaga Nú styttist í það að íbúar 62 sveitarfélaga fái tækifæri til þess að kjósa um sameiningu þeirra sveitarfélags við önnur. Samkvæmt tillögum sameiningarnefndar átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem skipuð er af félagsmálaráðherra verður kosið um sameiningu eftirtalinna sveitarfélaga í Eyjaf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mentorverkefnid-vinatta
Mentorverkefnið Vinátta Skólaárið 2005-2006 stendur nemendum í félagsvísinda- og kennaradeild HA til boða að taka þátt í Mentorverkefninu sem felst í því að tengjast grunnskólabarni í þeim tilgangi að verða jákvæð fyrirmynd í lífi þess. Mentorverkefnið Vinátta er samfélagsverkefni sem hóf göngu sína á Íslandi árið 2001...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samanburdur-fyrirtaekja
Samanburður fyrirtækja Impra nýsköpunarmiðstöð býður 50 framleiðslufyrirtækjum að taka þátt í Benchmarking verkefni - viðmið við þá bestu. Kostnaður við verkefnið er niðurgreiddur af Impru en niðurstöðurnar geta verið stjórnendum mjög gagnlegar við að forgangsraða umbótum innan fyrirtækisins. Impra, þjónustumiðstöð fru...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tilbod-i-rekstur-holmasolar
Tilboð í rekstur Hólmasólar Skóladeild Akureyrarbæjar auglýsir nú eftir tilboðum í rekstur nýja leikskólans Hólmasólar við Helgamagrastræti. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 26. september og í samræmi við það breytast aðrar dagsetningar sem þessu nemur. Útboðsgögn eru afhent í Þjónustuanddyri Akureyrarbæjar,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samherji-hlytur-islensku-sjavarutvegsverdlaunin
Samherji hlýtur Íslensku sjávarútvegsverðlaunin Samherji hlaut Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2005 fyrir framúrskarandi fiskvinnslu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn síðdegis í gær í Gerðarsafni í tengslum við Íslensku sjávarútvegssýninguna sem nú stendur yfir. Það er fiskvinnsla Samherja í Dalvíkurbyggð se...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-eggertsson-a-logfraeditorgi
Dagur Eggertsson á Lögfræðitorgi Á lögfræðitorgi á morgun, þriðjudaginn 13. september kl. 12.00, flytur Dagur B. Eggertsson erindi um mannréttindi í stjórnarskrám. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L203 að Sólborg við Norðurslóð. Mannréttindi njóta aukinnar verndar fyrir innlendum dómstólum og í lögum á Norðurlöndu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolbreytt-leikar-syningar-hafnar
Fjölbreytt leikár - sýningar hafnar Mikil fjölbreytni einkennir leikárið 2005-2006 hjá LA sem kemur í kjölfar eins mesta aðsóknarárs í sögu leikfélagsins. Sýningar eru nú þegar hafnar á Pakkinu á móti en í vetur verða átta leiksýningar á fjölunum. Þar af eru þrjár frumsýningar á: drepfyndnum gamanleik, kraftmiklum rokk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvenmannsleysi-eda-kynbombur-i-ithrottafrettum
Kvenmannsleysi eða kynbombur í íþróttafréttum Á félagsvísindatorgi miðvikudaginn 14. september mun Birgir Guðmundson fjalla um Evrópuverkefnið "Staðalímyndir kvenna í íþróttafréttum" sem Félagsvísinda- og lagadeild HA og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, ásamt samstarfsaðilum í 4 Evrópulöndum, vinna að með og und...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-bok-um-myndlist-a-akureyri
Ný bók um myndlist á Akureyri Út er komin forvitnileg bók sem ber heitið "Myndlist á Akureyri - að fornu og nýju". Það er Valgarður Stefánsson sem hefur safnað fróðleik og skrifað um myndlist í bænum og verður bókin kynnt á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 15. september kl. 17. Í bókinni er dregin upp einstök mynd af lista...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forvarnir-i-fjarmalum
Forvarnir í fjármálum Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna og Akureyrarkaupstaður hafa gert samkomulag um að vinna saman að forvörnum í fjármálum fyrir 10. bekkinga í grunnskólum Akureyrar. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur allt frá árinu 2003 gengið til þjónustusamninga við Akureyrarkaupstað og hafa ráðgjafar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolasetning-ma-2
Skólasetning MA Menntaskólinn á Akureyri var settur í dag með athöfn í Kvosinni, sal skólans á Hólum. Jón Már Héðinsson skólameistari fjallaði um skólaárið framundan og gat um margvíslega nýbreytni í starfinu og spennandi markmið. Hann sagði að í skólanum yrðu í vetur fleiri nemendur en nokkru sinni áður, um 690 talsin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/i-anda-sigurveigar-hjaltested-og-stefans-islandi
Í anda Sigurveigar Hjaltested og Stefáns Íslandi Laugardaginn 17. september verða haldnir tónleikar í anda Sigurveigar Hjaltested og Stefáns Íslandi í Ketilhúsinu á Akureyri. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00. Tónleikarnir eru þeir fimmtu í röð tónleika sem haldnir eru víðsvegar um landið. Á tónleikunum munu tveir ung...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljodaganga-vid-fagraskog
Ljóðaganga við Fagraskóg Sunnudaginn 18. september kl. 14.00 verður lagt upp í hina árlegu Ljóðagöngu og að þessu sinni verður farið í Fagraskóg. Með fræðslu, ljóðalestri og söng, verður Davíðs Stefánssonar minnst á bernskuslóðum hans, en í ár eru 110 ár liðin frá fæðingu skáldsins sem kunnugt er. Farið verður með hópf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ert-thu-med-sniduga-uppakomu
Ert þú með sniðuga uppákomu? Nú er unnið að nýjum viðburðabæklingi sem kemur út fyrir næstu mánaðamót. Í bæklingnum verða auglýstir viðburðir í október, nóvember og desember. Skilafrestur á efni til birtingar er á miðvikudaginn kemur, 21. september. Bæklingnum verður dreift í öll hús á Akureyri, auk þess sem hann mun l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolthjodleg-radstefna-um-ferdamennsku
Fjölþjóðleg ráðstefna um ferðamennsku Ferðamálasetur Íslands (FMSÍ) gengst fyrir fjölþjóðlegri ráðstefnu um rannsóknir á ferðamennsku og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja dagana 22. - 25. september . Ráðstefnan er haldin á Akureyri í samvinnu við Nordisk Selskab for Turismeforskning en samtökin standa að útgáfu Scandinav...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fogur-fyrirheit-og-innra-skipulag
Fögur fyrirheit og innra skipulag Á félagsvísindatorgi miðvikudaginn 21. september fjallar Ágústa H. Lárusdóttir um nauðsynina á góðu innra skipulagi til að takast á við örar breytingar og auknar kröfur. Með góðu innra skipulagi skapast svigrúm til að takast á við breytingar og þróun. Það er ekki nóg að setja niður á b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/renzo-ruggieri-i-deiglunni
Renzo Ruggieri í Deiglunni Gilfélagið og Samband íslenskra harmoniku-unnenda bjóða haustið velkomið með tónleikum í Deiglunni laugardaginn 24. september kl. 15.00. Fram koma ítalski harmonikuleikarinn Renzo Ruggieri, ásamt hinum frábæru listamönnum Eyþóri Gunnarssyni, Róbert Þórhallssyni, og Erik Qvick. Á efnisskrá er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vistaskipti-hja-akureyrarbae
Vistaskipti hjá Akureyrarbæ Næsta mánuð eða svo mun Hólmkell Hreinsson, Amtsbókavörður, gegna starfi menningarfulltrúa að hluta til. Þórgnýr Dýrfjörð, sem venjulega innir starfið af hendi, er á leið í fæðingarorlof og mun Hólmkell sinna ákveðnum verkefnum menningarfulltrúans í hálfu starfi á meðan. Að sögn Þórgnýs er h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnadri-sildarvertid-lokid
Vel heppnaðri síldarvertíð lokið Fjölveiðiskip Samherja hf., Baldvin Þorsteinsson EA 10 og Vilhelm Þorsteinsson EA 11, komu með fullfermi til Akureyrar á föstudag að lokinni vel heppnaðri síldarvertíð en bæði skipin voru þá búin með aflaheimildir sínar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Frá því síldarvertíðin hófst þan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/belgiska-kongo-hja-la
Belgíska Kongó hjá LA Föstudaginn 30. september og laugardaginn 1. október verða gestasýningar á "Belgíska Kongó" hjá Leikfélagi Akureyrar. "Belgíska Kongó" er ísmeygilegur gamanleikur eftir Braga Ólafsson sem hlaut einróma lof og hefur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu síðustu misseri. Verkið þykir einstakleg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/asprent-still-limmidar-nordurlands-og-prenttorg-sameinast
Ásprent Stíll, Límmiðar Norðurlands og Prenttorg sameinast Samningur um sameiningu Ásprents Stíls, Límmiða Norðurlands og Prenttorgs var undirritaður á miðvikudag. Undirritunin var gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og ætti hún að liggja fyrir innan fárra vikna. Fyrirtækin Límmiðar Norðurlands ehf. o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfonian-i-skolunum
Sinfónían í skólunum Hinn 26. september hófust skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Heimsóttir verða skólar allt frá Siglufirði austur í Mývatnssveit. Í þessum heimsóknum verður leikið fyrir um 3.000 grunnskólanemendur. Verða tónleikar á hverjum mánudagsmorgni og lýkur skólatónleikadagskránni þann 5. desemb...
https://www.akureyri.is/is/frettir/draumar-i-thjodtru-islendinga
Draumar í þjóðtrú Íslendinga Laugardaginn 1. október kl. 14 heldur Björg Bjarnadóttir sálfræðingur fyrirlestur í sal Zontaklúbbs Akureyrar, Aðalstræti 54. Fyrirlesturinn nefnist "Draumar í þjóðtrú Íslendinga" og er eins og nafnið bendir til um drauma Íslendinga fyrr og síðar. Björg hefur gert viðamikla Gallupkönnun á d...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menntasmidja-og-althjodastofa-flutt-um-set
Menntasmiðja og Alþjóðastofa flutt um set Menntasmiðja kvenna á Akureyri og Alþjóðastofa hafa flutt í gamla barnaskólahúsið við Gilið (áður Brekkuskóli og þar áður Barnaskóli Íslands). Ýmis starfsemi er í gangi og ber þar helst að nefna Menntasmiðju kvenna sem fór af stað í septemberbyrjun með 22 þátttakendum á námskei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/er-smatt-fallegt-og-stort-hagkvaemt
Er smátt fallegt og stórt hagkvæmt? Fram kom í máli félagsmálaráðherra, Árna Magnússonar, á málþingi við Háskólann á Akureyri í dag um fyrirhugaða sameiningu sveitarfélaga, að allt að 2,4 milljörðum króna verði varið til að styðja við þau sveitarfélög sem kjósa að sameinast. Horft verði til verkefna sveitarfélaganna, þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sameining-sveitarfelaga-2
Sameining sveitarfélaga Í dag, mánudaginn 3. október, verður haldið í rannsóknarhúsi Háskólans á Akureyri, Borgum, málþing um sameiningu sveitarfélaga. Þar kynnir félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, hugsanlega sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð og einnig flytur Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptaháskólann...
https://www.akureyri.is/is/frettir/morg-verkefni-i-vinnslu
Mörg verkefni í vinnslu Um þessar mundir er liðið eitt ár síðan Vaxtarsamningi Eyjafjarðarsvæðisins var ýtt úr vör. Á fyrstu mánuðum var unnið að því að skilgreina verkefnið og móta vinnuna framundan. Á síðustu mánuðum hefur ýmsum verkefnum verið ýtt úr vör undir fjórum skilgreindum klösum – ferðaþjónustuklasa, mennta-...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningarfundur-a-akureyri-um-sameiningarmal
Kynningarfundur á Akureyri um sameiningarmál Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Eyjafirði hefur haldið átta kynningarfundi í sveitarfélögunum upp á síðkastið og verður sá síðasti í Ketilhúsinu á Akureyri, klukkan 20.30 þriðjudagskvöldið 4. október. Áður hafa verið haldnir fundir á Dalvík, í Laugarborg í Eyjaf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-felagsmidstod-eldri-borgara
Ný félagsmiðstöð eldri borgara Gerðar hafa verið umfangsmiklar breytingar á húsnæði Akureyrarbæjar á jarðhæð Bugðusíðu 1 og þar útbúin félagsmiðstöð fyrir eldri borgara ásamt aðstöðu fyrir heimaþjónustu og heimahjúkrun. Stærstur hluti húsnæðisins tilheyrir félagsmiðstöðinni en þar er m.a. fjölnotasalur sem nýta má til ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-sidfraedi-kants
Ráðstefna um siðfræði Kants Ráðstefna um siðfræði Immanuels Kants verður haldin 8. og 9. október nk. í Háskólanum á Akureyri. Heiti ráðstefnunnar er "Rætur siðferðisins: um verklega heimspeki Immanuels Kants". Kennaradeild háskólans stendur fyrir ráðstefnunni. Fyrirlesarar koma víða að og eru sumir í hópi fremstu sérfr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/koparpeningur-fundinn-a-gasum
Koparpeningur fundinn á Gásum? Á síðastliðnum árum hefur eitt stærsta safn miðaldaleirkerjabrota á Íslandi fundist á Gásum og enn bætist við safnið. Flest eru brotin þýsk eða ensk að uppruna og tímasett til 14. og 15. aldar. Í ár fundust leirkerjabrot sem rekja má til austurhluta Englands og til Rínlanda, og þeirra á m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidtalstimar-hefjast-a-manudag
Viðtalstímar hefjast á mánudag Mánudaginn 10. október hefjast að nýju viðtalstímar bæjarfulltrúa. Þar gefst bæjarbúum kostur á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum, ræða við fulltrúa sína um málefni bæjarfélagsins og annað sem þeim liggur á hjarta. Fundirnir eru haldnir á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og standa frá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hin-islensku-sjonlistaverdlaun
Hin Íslensku sjónlistaverðlaun Í gær, fimmtudaginn 6. október, voru í Listasafninu á Akureyri gerð heyrinkunn hin Íslensku sjónlistarverðlaun að viðstöddum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, Valgerði Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, bæjarstjóra á Akureyri, Hannesi Sigurðssyni, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytid-kosningarettinn
Nýtið kosningaréttinn Á morgun, laugardaginn 8. október, greiða íbúar níu sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu atkvæði um sameiningu þeirra. Á kjörskrá eru 16.759 manns, flestir á Akureyri eða rösklega 12 þúsund. Talning atkvæða fer fram á öllum stöðunum eftir kl. 22.00 annað kvöld og verða úrslit birt á heimasíðu samsta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sameiningartillagan-felld
Sameiningartillagan felld Niðurstöður atkvæðagreiðslu um sameiningu níu sveitarfélaga við Eyjafjörð liggur nú fyrir. Tillagan var felld í sjö sveitarfélögum en samþykkt í tveimur, þ.e. á Siglufirði og í Ólafsfirði. Skilyrði fyrir endurkosningu er að tvö sveitarfélög samþykki og að fleiri séu meðmæltir í heild en andvíg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolastefna-i-gedheilbrigdismalum
Skólastefna í geðheilbrigðismálum Á félagsvísindatorgi miðvikudaginn 12. október ræðir ræðir Sigursteinn Másson um forvarnir og viðbrögð við veikindum nemenda og kennara í menntastofnunum. Einnig fjallar hann um áfengisveitingar tengdar félagslífi skólafólks. Háskóli Íslands hefur verið gagnrýndur fyrir stefnuleysi í g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/laugardagur-i-laufasi
Laugardagur í Laufási Hver ætli séu dæmigerð haustverk nútíma Íslendingsins? Gæti það verið að skipta um dekk á bílnum, fárast yfir því hve snjórinn komi snemma þetta árið eða er það kannski að taka inn grillið og sólstólana? Eitt er víst að margt hefur breyst frá gamla sveitasamfélaginu. Laugardaginn 15. október nk. g...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mixum-betri-bae
Mixum betri bæ Í gær, fimmtudaginn 13. október, var efnt til hugmyndaþings meðal fulltrúa ungmenna á Akureyri þar sem fjallað var um það hvað ætti að gera við þá fjármuni sem safnast hafa með átakinu "Mixum betri bæ". Eins og flestir muna þá gerði áfengis- og vímuvarnanefnd Akureyrarbæjar samning við Ölgerðina Egil Ska...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fleiri-vistaskipti
Fleiri vistaskipti Eins og kom fram hér á heimasíðunni um daginn leysir Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður af menningarfulltrúann Þórgný Dýrfjörð meðan sá síðarnefndi er í barnaburðarleyfi. Skólafulltrúinn Gunnar Gíslason er líka farinn í fæðingarorlof og leysir Ingólfur Ármannsson hann af á meðan. Ingólfur var lengi ke...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hrafnabjorg-ibudarsvaedi-tillogur-ad-breytingum-a-adal-og
Hrafnabjörg, íbúðarsvæði - tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á aðalskipulagi íbúðarsvæðis við Löngumýri/-Hrafnabjörg. Breytingin felst í því að lóð nr. 1 við Hrafnabjörg stækkar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barattu-hatid-kvenna-a-akureyri
Baráttu hátíð kvenna á Akureyri Hátíðar- og baráttufundur verður haldinn á Akureyri þann 24. október næstkomandi í tilefni af því að þá verða þrjátíu ár liðin frá kvennafrídeginum árið 1975. Þann dag fyrir þrjátíu árum lögðu þúsundir íslenskra kvenna niður vinnu til að draga fram mikilvægi vinnuframlags þeirra til efna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haettu-adur-en-thu-byrjar-1
Hættu áður en þú byrjar! Í kvöld kl. 20.00, miðvikudaginn 19. október, verður foreldrum nemenda í 8. og 9. bekk boðið upp á forvarnafræðsluna "Hættu áður en þú byrjar" á sal Brekkuskóla. Undanfarna daga hafa nemendur fengið sömu fræðslu. Liður í forvarnafræðslunni er að bjóða foreldrum að sjá og heyra hvaða fræðslu ung...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brudkaupid-frumsynt-i-kvold
Brúðkaupið frumsýnt í kvöld Gamanleikritið Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld en uppselt er á 10 fyrstu sýningarnar. Hér er um drepfyndinn og rómantískan gamanleik að ræða. Hann er hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Leikritið er eftir sama höfund og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nu-fylkja-konur-lidi
Nú fylkja konur liði Í tilefni 30 ára afmælis kvennafrídags 24. október verður sýningin ...nú fylkja konur liði... opnuð föstudaginn 21. október kl. 17.15 í anddyri Amtsbókasafns og Héraðsskjalasafns. Sýnd verða skjöl, myndir, blaðaúrklippur og munir sem tengjast kvennabaráttu og kvennafrídögunum 1975 og 1985. Sýningin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-heimasida-oldrunarheimilanna
Ný heimasíða Öldrunarheimilanna Opnuð hefur verið ný heimasíða Öldrunarheimila Akureyrar. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um öll heimilin, þ.e. Bakkahlíð, Hlíð, Kjarnalund og Skjaldarvík. Ennig eru þar upplýsingar um stoðdeildir heimilanna, s.s. félagsstarf, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, dagþjónustu í Hlíð og skamm...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjonthing-jons-laxdal
Sjónþing Jóns Laxdal Á morgun, laugardaginn 22. október kl. 15.00, verður sjónþing Jóns Laxdal haldið í Deiglunni en sýningu á verkum hans í Listasafninu á Akureyri lýkur á sunnudag. Sjónþinginu er ætlað að veita persónulega innsýn í feril Jóns með það fyrir augum að skoða framlag hans og rifja upp farinn veg. Jafnfram...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thrjatiu-ara-afmaeli-kvennafridagsins
Þrjátíu ára afmæli kvennafrídagsins Hátíðar- og baráttufundur verður haldinn í Sjallanum í dag í tilefni 30 ára afmælis kvennafrídagsins. Fundurinn hefst kl. 15 og er opinn öllum. Hvatt hefur verið til þess undanfarna daga að konum um land allt verði gert kleift að fylkja liði á baráttufundi og leggja niður störf kl. 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/slokkvilidid-faer-nyja-bila
Slökkviliðið fær nýja bíla Laugardaginn 22. október var Slökkviliði Akureyrar afhentur nýr slökkvibíll frá MT- bílum sem verið hefur í smíðum á Ólafsfirði. Um er að ræða einn öflugasta slökkvibíl landsins af gerðinni Scania með 420 ha. vél og sjálfskiptingu. Bíllinn er með tvöföldu húsi og sætum fyrir 5 sem eru útbúinn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fraedslufundur-um-heilsueflingu
Fræðslufundur um heilsueflingu Foreldrafélög grunnskólanna á Akureyri í samvinnu við Heilsueflingarráð boða til fræðslufundar miðvikudaginn 26. október nk. klukkan 20 í Brekkuskóla (gamli Gagginn). Þar talar Hólmfríður Þorgeirsdóttir um næringu, en holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir börn og unglinga sem eru að v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/trodfullur-sjalli
Troðfullur Sjalli Konur fylltu Sjallann upp í rjáfur í gær, mánudaginn 24. október, þegar þar var haldinn hátíðar- og baráttufundur í tilefni 30 ára afmælis kvennafrídagsins. Færri komust að en vildu og varð að setja hátalara út á götu til að allir gætu hlýtt á það sem fram fór. Myndirnar hér að neðan tala sínu máli. K...
https://www.akureyri.is/is/frettir/themadagar-i-tonlistarskolanum
Þemadagar í Tónlistarskólanum Nú standa yfir þemadagar í Tónlistarskólanum á Akureyri. Að þessu sinni er þjóðleg tónlist í hávegum höfð og verða fjölbreytilegir samspilstónleikar á vegum skólans fimmtudaginn 27. október í sal Brekkuskóla og föstudaginn 28. október í sal Tónlistarskólans að Hvannavöllum 14. Tónleikarnir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/helgi-thorgils-i-listasafninu
Helgi Þorgils í Listasafninu Laugardaginn 29. október verður opnuð sýning á nýjum og nýlegum verkum eftir Helga Þorgils Friðjónsson í Listasafninu á Akureyri. Sýningin, sem ber heitið Tregablandin fegurð, er ætlað að veita heilsteypt yfirlit yfir feril Helga á undanförnum árum og hefur að geyma mörg af hans áhrifamestu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menning-i-menningareydimork
Menning í menningareyðimörk? "Fyrirlestrar á haustdögum" nefnist fyrirlestraröð sem listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri hefur skipulagt fyrir nemendur. Þeir eru haldnir í samvinnu við Menningarmiðstöðina í Grófargili og fara fram í Ketilhúsinu næstu fjóra föstudaga. Það er Yean Fee Quay sem ríður á vaðið en yfir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/af-norskum-rotum
Af norskum rótum Laugardaginn 29. október hefst ný sýning í Minjasafninu á Akureyri. Sýningin nefnist "Af norskum rótum" og fjallar um gömul timburhús í Noregi og á Íslandi. Flestir hafa augum litið norsk "katalóghús" Líklega verða margir hvumsa og spyrja hvers konar hús það séu og hvar þau standi. Þau eru þó nokkuð áb...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-syning-i-listagilinu
Ný sýning í Listagilinu Laugardaginn 29. október opnar Sigríður Ágústsdóttir sýningu á verkum sínum í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu. Sigríður stundaði nám í leirlist í listaskólum í Frakklandi og Englandi á áttunda áratugnum. Hún hefur tekið þátt í sýningum víða svo sem Noregi, Finnlandi, Danmörku, Belgíu, Bretland...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bjorg-synir-malverk-og-ljosmyndir
Björg sýnir málverk og ljósmyndir Björg Eiríksdóttir opnaði sýninguna "Inni" í sal Svartfugls og Hvítspóa laugardaginn 29. október. Sýningin stendur til og með 13. nóvember og verður opin alla daga frá 13-17. Þetta er önnur einkasýning Bjargar og önnur sýningin sem fer fram í nýjum, fallegum sal Svartfugls og Hvítspóa ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/a-gonguskidum
Á gönguskíðum Kjarnaskógur er ein af útivistarperlum Akureyringa. Þar er vinsælt að fara um á gönguskíðum þegar tækifæri gefast til þess á veturna. Sem kunnugt er hefur snjóað talsvert undanfarið og við höfum fregnað að færið í Kjarnaskógi sé nú með ágætum. Einnig er opið fyrir gönguskíðafólk í Hlíðarfjalli til kl. 22 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hundaeigendur-a-akureyri
Hundaeigendur á Akureyri Lögboðin hundahreinsun á Akureyri árið 2005 fer fram í Lagerhúsi Framkvæmdamiðstöðvar að Rangárvöllum, föstudaginn 4. nóvember frá kl. 16-19 og laugardaginn 5. nóvember frá kl. 10-12. Enginn má halda hund á Akureyri nema hafa fengið til þess heimild bæjarstjórnar, sbr. samþykkt um hundahald á A...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hlidarfjall-opnad-a-laugardag
Hlíðarfjall opnað á laugardag Ákveðið hefur verið að opna skíða- og snjóbrettabrekkurnar í Hlíðarfjalli á laugardaginn kemur. Veðurskilyrði hafa verið mjög hagstætt og talsvert snjóað. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns skíðamiðstöðvarinnar, er færið gott en fyrst um sinn verði aðeins Fjarkinn opinn á lau...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hoepfnersbryggja-tillaga-ad-breytingu-a-deiliskipulagi
Höepfnersbryggja, tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á deiliskipulagi Höepfnersbryggju, athafnasvæðis siglingaklúbbsins Nökkva. Breytingin felst í því að norðan núverandi landfyllingar verður gert ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppselt-a-edith-piaf
Uppselt á Edith Piaf Dagana 10. - 12. nóvember gefst íbúum Norðurlands tækifæri á að upplifa ógleymanlega túlkun Brynhildar Guðjónsdóttir á Edith Piaf, einni frægustu söngkonu heims. Um er að ræða söngdagskrá úr samnefndri sýningu Þjóðleikhússins. Uppselt er á allar fjórar sýningarnar sem fyrirhugaðar voru og sömu sögu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/munir-og-myndir-fra-lidinni-old
Munir og myndir frá liðinni öld Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og í nágrenni (FVSA) var stofnað 2. nóvember árið 1930 og fagnar því 75 ára afmæli sínu um þessar mundir en félagið er elsta stéttarfélag verslunarmanna hér á landi. Í tilefni afmælisins verður haldin sýning á 4. hæð Alþýðuhússins föstudagin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/siminn-fjolgar-storfum-a-akureyri
Síminn fjölgar störfum á Akureyri Síminn hyggst nú bæta við fólki og stækka söluver sitt á næstunni. Ákveðið hefur verið að fara með hluta starfseminnar til Akureyrar og verða allt að 16 hlutastörf auglýst á svæðinu. Fram kemur í tilkynningu frá Símanum, að dótturfyrirtæki félagsins, Já (118), sé með starfsstöðvar á Eg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tre-sem-sluta-yfir-gotuna
Tré sem slúta yfir götuna Akureyri er gróðursæll bær og víða er það svo að tré í görðum breiða heldur of mikið úr sér og jafnvel langt út fyrir lóðarmörk. Þess vegna hefur skipulags- og byggingafulltrúi Akureyrarbæjar sent frá sér eftirfarandi tilkynningu. "Skipulags- og byggingafulltrúi skorar á lóðarhafa og umráðendu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-sjalfsakvordunarrett-thjoda
Málþing um sjálfsákvörðunarrétt þjóða Á morgun, þriðjudaginn 8. nóvember, verður haldið málþing um sjálfsákvörðunarrétt þjóða í stofu 14 í Þingvallastræti 23 á vegum Háskólans á Akureyri. Í fréttatilkynningu frá háskólanum segir: "Sjálfsákvörðunarréttur þjóða hefur orðið æ meira áberandi í alþjóðlegri umræðu á liðnum á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjarhagsaaetlun-til-fyrri-umraedu
Fjárhagsáætlun til fyrri umræðu Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2006 verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn á fundi sem hefst kl. 16 í dag, þriðjudaginn 8. nóvember. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, hélt stuttan blaðamannafund af þessu tilefni og kynnti þar einnig upplýsingar um vöxt og grósku á ý...
https://www.akureyri.is/is/frettir/groska-i-byggingaridnadi
Gróska í byggingariðnaði Mikil gróska hefur verð í bygginariðnaði á Akureyri undanfarin misseri og virðist ekkert lát á. Fjallað var um málið í svæðisfréttum RÚV í gærkvöldi og sagði þar orðrétt: "Þeir byggingaverktakar sem fréttastofan ræddi við eru með tugi íbúða í smíðum og nær allar íbúðirnar eru seldar. SS-byggir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/murinn-fellur
Múrinn fellur Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, flytur erindi á félagsvísindatorgi miðvikudaginn 9. nóvember um þau neytendamál sem hann telur brýnast að taka til meðferðar og þau sjónarmið sem hann leggur til grundvallar við forgangsröðun. Þá mun hann fara yfir nýlokið samráðsferli og hvernig hann hyggst nálgast h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lifsloginn
Lífsloginn Rithöfundurinn og fréttamaðurinn, Björn Þorláksson, fagnaði útgáfu nýrrar skáldsögu sinnar í Listasafninu á Akureyri í dag og afhenti við það tilefni bæjarstjóranum á Akureyri og skólameistara Menntaskólans á Akureyri eintök af bók sinni með þökk fyrir liðveislu. Nýja skáldsagan, Lífsloginn, er saga um kenna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyskipan-logreglumala-jakvaed-vidbrogd
Nýskipan lögreglumála - jákvæð viðbrögð Í gær var haldinn á Akureyri kynningarfundur um nýskipan lögreglumála. Fundinn sóttu lögreglumenn, sýslumenn og sveitarstjórnarmenn af öllu Norðurlandi. Fulltrúar framkvæmdanefndarinnar sem setti fram tillögur um málið kynntu þær og svöruðu fjölda fyrirspurna. Tillögurnar fela me...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ja-eg-thori-get-og-vil
Já, ég þori, get og vil Hildur Hákonardóttir kynnir og les upp úr bók sinni "Já, ég þori, get og vil!", sem fjallar um kvennafrídaginn 1975, á Amtsbókasafninu klukkan 17.15 í dag, miðvikudaginn 9. nóvember. Hinn 24. október 1975 hittust konur víða um land og töluðu saman um hvernig væri hægt að ná réttlátari verkaskipt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/miklir-moguleikar-i-kraeklingaraekt
Miklir möguleikar í kræklingarækt Mánudaginn 14. nóvember verður haldinn fundur um kræklingarækt kl. 14.30 í Borgum, rannsóknarhúsi Háskólans á Akureyri með sérfræðingum á því sviði. Ætlunin er að ræða vaxtarmöguleika á Íslandi, framtíðarsamvinnu frumkvöðla á norðurslóðum og leita eftir þekkingu frá svæðum sem lengst h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haraldur-ingi-i-galleri
Haraldur Ingi í Gallerí+ Haraldur Ingi Haraldsson opnar sýningu sína "Codhead 4" í Gallerí+, Brekkugötu 35 á Akureyri, laugardaginn 12. nóvember á fimmtugsafmælisdaginn sinn, klukkan 16.00. Sýningin stendur til og með 27. nóvember. Galleríið er opið um helgar milli klukkan 14-17 og aðra daga eftir samkomulagi í síma 46...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fiskveidisamfelagid-sem-stjorntaeki
Fiskveiðisamfélagið sem stjórntæki Í erindi sínu á Félagsvísindatorgi föstudaginn 11. nóvember ræðir félagsfræðingurinn Stig Gezelius um samspil laga og siðferðis í lífi og störfum sjómanna og hvaða áhrif samfélagið hefur á ákvarðanir sjómanna um að fylgja settum reglum. Stig S. Gezelius starfar við Hagfræðistofnun lan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listakonur-a-faraldsfaeti
Listakonur á faraldsfæti Listakonurnar Anna Gunnarsdóttir og Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, sem reka saman galleríið og vinnustofuna "Svartfugl & hvítspóa", sitja aldeilis ekki auðum höndum. Báðar eru að sýna víða um heim og nú síðast náði Anna mjög góðum árangri í hönnunarsamkeppninni Wearable Art Expressions. Anna segir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aefing-hja-slokkvilidinu
Æfing hjá slökkviliðinu Stór æfing var hjá Slökkviliði Akureyrar föstudaginn 11. nóvember á svæðinu fyrir neðan Háskólann á Akureyri og í gamla sveitabýlinu Borgum, sem nýja rannsóknarhúsið er kennt við. Þessi æfing var síðasti hluti og í raun hápunktur æfingarviku fjögurra slökkviliðsmanna sem eru að ná því takmarki a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvikmyndataka-i-innbaenum
Kvikmyndataka í Innbænum Mikið var um að vera við Minjasafnið í dag en þar var þá á ferð kvikmyndatökuhópur frá Saga Film sem vann að auglýsingu fyrir erlent fyrirtæki. Það sem vakti kannski einna mesta athygli var að snjóbyssa úr Hlíðarfjalli var notuð við tökurnar. Byssunni var stillt upp í brekkunni rétt vestan við ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baett-vid-syningum-hja-la
Bætt við sýningum hjá LA Gamanleikritið Fullkomið brúðkaup, sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi 20. október sl., hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og afar jákvæða dóma. Uppselt var orðið á allar sýningar og því hefur verið gripið til þess ráðs að bæta við nokkrum aukasýningum. Fullkomið brúðkaup er drepfyndin og ske...