text
stringlengths 0
342
|
---|
fyrir mér saman. |
Man ég þó missi |
mínn í heimi |
fyrstan og sárstan, |
er mér faðir hvarf. |
Man ég afl andans |
í yfirbragði, |
og ástina björtu, |
er úr augum skein. |
Var hún mér æ, |
sem á vorum ali |
grös in grænu |
guðfögur sól. |
Man ég og minnar |
móður tár, |
er hún aldrei sá |
aftur heim snúa |
leiðtoga ljúfan, |
ljós á jörðu |
sitt og sinna. |
Það var sorgin þyngst. |
Mjög hef ég síðan |
til moldar ganga |
ættmenni bezt |
og ástvini séð. |
Þá vill hugur |
harma telja, |
þegar böl búið |
er brjósti nýtt. |
Sá ég hinn góða, |
er guði treysti, |
ungan og öflgan, |
ættjarðar von, |
Lárus á bana- |
bólstur hniginn, |
líki líkan, |
er ég land kvaddi. |
Sá ég með Dönum |
í dauðra reit |
Baldvin úr bruna |
borinn vera, |
fríða, fullstyrka |
frelsishetju. |
Söknuður sár |
sveif mér þá að hjarta. |
Sá ég Torfa, |
tryggðreyndan vin, |
hraustan, hreinskilinn |
og hjartaprúðan, |
lífi ljúka |
og lagðan vera |
ættjörðu fjær, |
er hann unni mest. |
Átti eg eftir |
enn í heimi |
ungan og fagran |
ættarblóma. |
Vel mundi kæta, |
vel mundi bæta, |
laufgrænn kvistur |
lágan runna. |
Það man ég yndi |
öðru meira, |
er við Skafta |
skilning þreyttum, |
eður á vænum |
vinafundi |
góða, geðspakur, |
á gleði jók. |
Sá ég þig, frændi, |
fræði stunda |
og að sælum |
sanni leita, |
þegar röðull |
á rósir skein, |
og bládögg beið |
á blámi sofanda. |
Er þú á hæsta |
hugðir speki |
og hátt og djúpt |
huga sendir. |
Of eru myrk |
manna sonum, |
þeim, er hátt hyggja, |
in helgu rök. |
Brann þér í brjósti, |
bjó þér í anda, |
ást á ættjörðu, |
ást á sannleika. |