segment_id start_time end_time set text 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00000 3439 19137 train Síðasti fyrirlesturinn í þessari viku er jafnframt fyrsti fyrirlesturinn í hreyfingafræðinni og ég hef ákveðið að kalla hann Inngang að hreyfingarfræði. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00001 20254 41479 eval Við förum nú svo sem ekkert mjög djúpt í hlutina, en, en þetta er kannski hugsað meira sem svona ákveðin hugvekja til þess að við förum aðeins að velta ákveðnum hlutum fyrir okkur áður en við byrjum á að taka fyrir svona ákveðin efni sem við ætlum að kíkja á í næstu viku. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00002 45418 66855 train En hreyfingafræði er oft líka kallað eða talað um sem lífaflfræði, á ensku útleggst það sem „Biomechanics“ og Íslendingar sletta þessu oft sem bara bíómekaník. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00003 68309 81620 dev Hreyfingafræðin eða lífaflfræðin fjallar í raun og veru hvernig áhrif mismunandi álag, bæði innra og ytra, hefur á líkamann okkar. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00004 84483 107999 train Fjallar um það til dæmis hvernig kraftar verka á liði og við höfum nú heldur betur aðeins snert á því í umfjöllun okkar um fótinn og hvernig, svona, bogarnir í honum virka til þess að dempa högg við lendingu. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00005 108709 134163 eval Það er að segja að það ferli sem við erum að skoða þegar við lendum í súpíneraðri stöðu á fætinum, aðeins utan á jarkanum og færa svo þungann okkar inn á miðjan fótinn í pronation stöðu, það er hrein og bein lífaflfræði. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00006 134524 156340 dev Nú, áverkaferli sem við höfum svolítið skoðað í, með tilliti til þess hvernig við slítum liðbönd, hvaða hreyfingar valda mestu álagi á ákveðin liðbönd sem gerir það að verkum að þau ýmist trosna eða slitna alveg, það er líka lífaflfræði. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00007 157750 172719 train Þannig að væntanlega fyrir einhver ykkar, ómeðvitað, þá erum svona aðeins búin að vera að taka dæmi um lífaflfræði og hreyfingafræði í gegnum þessa síðustu fyrirlestra. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00008 174120 186269 train Nú, við getum í raun og veru tekið þetta saman með þeim hætti að hreyfingafræði fjallar um uppsetningu á mannslíkamanum sem mekanísku kerfi. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00009 186979 208634 train Það er að segja, bara, vélin mannslíkaminn, hvernig hún er sett upp, og hvernig beitum við okkur með þeim hætti að við völdum sem minnstu álagi á stoðkerfið, en á sama tíma sköpum eins mikinn kraft og við getum mögulega. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00010 212614 240659 train Nú, en, tilgangur og notagildi innan íþrótta, er aðallega að bæta árangur, bæta frammistöðu, fyrirbyggja meiðsli með því að skoða hreyfimynstur hjá viðkomandi einstaklingum og stuðla að bættri endurhæfingu. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00011 241330 258629 train Það er að segja, er eitthvað, einhver tækni sem við getum nýtt okkur til þess að viðkomandi verði fyrr tilbúinn í slaginn og geti verið lengur leikfær. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00012 258629 262941 train Það er að segja, getum við fyrirbyggt endurtekin meiðsli. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00013 263153 265839 dev Ef við skoðum þessa punkta kannski aðeins nánar. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00014 268589 277389 train Bætt frammistaða og bættur árangur helst í hendur við góða tækni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00015 278550 286359 train Að bæta tækni, gerir það að verkum að við getum útfært einhverja ákveðna hreyfingu betur. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00016 288269 292139 train Og þar af leiðir að við erum líklegri til þess að ná betri árangri. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00017 293189 301909 train Þannig að innan hreyfingafræðinnar þá erum við svolítið í að horfa á það að meta hreyfinguna og leiðrétta hana. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00018 302617 309930 train En það krefst þess líka að við höfum góðan skilning á grunntækninni sem að þarf að vera til staðar. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00019 310987 342916 train Nú, eins snýst þetta líka um að við höfum getu og þekkingu til þess að lesa okkur til eða kynna okkur nýja tækni sem að er þá byggð á rannsóknum eða reynslu, náttúrulega, klárlega, í mörgum tilfellum, og miðla henni til iðkenda okkar, til þess að þeir megi bæta sína tækni og sína frammistöðu. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00020 346540 360959 train Nú, ef við, ef við förum aðeins að skoða þetta kannski út frá ytra umhverfinu, að þá er þetta líka spurning um búnað sem að við notum í keppni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00021 361517 374856 train Getum við gert hann þannig að hann hjálpi okkur, hann stuðli að því að við náum betri árangri, eða drögum úr áhættu á meiðslum? 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00022 375168 392404 dev Dæmi um það er til dæmis kannski bara styrkingar á skóm, ef við fáum okkur skó sem eru innanfótarstyrktir af því að við ráðum ekki alveg við að stýra fætinum okkar í lendingu og förum alltaf í of mikla pronation á fæti. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00023 392765 406139 train Að þá geta skór sem eru styrktir innanfótar haldið okkur frá því hreyfimunstri og þannig stuðlað að því að okkur líður betur. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00024 406389 412339 train Við erum mögulega laus við einhver álagseinkenni og getum þar af leiðandi bætt frammistöðuna okkar. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00025 413876 421800 dev Nú, eins snýst þetta svolítið um hvernig getum við greint hreyfingu, eins og ég kom inn á, og hreyfimunstur. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00026 422599 433351 eval Og skoðað hvaða vöðva við þurfum að styrkja og þá þurfum við að hafa skilning á líffærafræðinni okkar og vöðvavirkni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00027 433565 441039 train Við þurfum að hafa skilning á því hvaða vöðvar valda ákveðnum hreyfingum og hreyfimunstrum. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00028 441039 466129 train Hvaða vöðvar valda ákveðnu togi, ef við tökum sem dæmi stöðu herðablaðsins sem við fjölluðum hérna yfir áðan, þegar að herðarblaðið leitar í niðursnúning og aukinn framhalla, hvaða vöðvar eru þar sem við þurfum að losa upp og liðka, og hvaða vöðvar eru þá þeir sem að þurfa á aukinn, auknum styrk að halda. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00029 469846 492980 train Þannig í heildina þá snýst þetta um hvernig við bestum, innan gæsalappa, tækni og að baki því liggur heilmikill skilningur á hreyfingum, á álagi á stoðkerfið, á vöðvavirkni, og það er hreyfingafræðin. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00030 494445 508823 train Nú, svona til gamans þá setti ég hérna inn eina mynd af fastskin-sundbúningunum sem að voru, hérna, mikið nýttir á sínum tíma og eru nú búin að, eru nú bannaðir. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00031 509880 514770 train Þú mátt í raun og veru eingöngu vera í skýlu sem að nær frá mitti og niður á hné. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00032 515182 531725 train Og það er dæmi um, í raun og veru, vel heppnaða tækninýjung sem að gerði það að verkum að frammistaða iðkenda batnaði svo rosalega að það þurfti að banna hana. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00033 532096 544280 train Gallarnir gerðu það að verkum að iðkendurnir þurftu ekkert að einbeita sér að því að halda sér á floti, heldur gátu nýtt sér, gátu nýtt allan kraftinn sinn í bara að knýja sig áfram í vatninu. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00034 544280 552893 train Og þannig féllu heimsmetin koll af kolli, ólíkt því sem áður hefur þekkst í sundíþróttinni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00035 556547 573777 dev Nú, en, kannski spurning sem mig langar að velta til ykkar og eitthvað sem ég hef, svona, spurt að reglulega er: Ja, hvað er hreyfing? 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00036 574100 585483 train Og við sem íþróttamenn kannski pælum ekkert svo mikið í því alltaf. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00037 585704 611539 train Nýlega þá hlustaði ég á, á podcast þar sem spjallað var við Lee Taft, sem er einn, svona, fremsti hraðaþjálfari í heiminum, hraða- og styrktarþjálfari, og hann kom með áhugaverðan punkt, sem er einfaldlega svona: You are not thinking about how you move, you are just thinking about making a play. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00038 611667 624594 train Þannig að leikmaður eða iðkandi er ekkert endilega að hugsa um, heyrðu, já, ég þarf að muna að stýra hnénu mínu svona, ég þarf að muna að stækka undirstöðuflötinn minn til þess að ég sé með betra jafnvægi. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00039 625500 648860 train Hann er bara að hugsa um að skora mark eða [UNK] sig fram hjá andstæðingnum eða tækla andstæðinginn, brjóta á honum, þannig að í raun og veru höfum við ekki kannski velt þessu svo mikið fyrir okkur, eins og þetta er mikilvægur þáttur af okkar leik. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00040 653698 665239 train En svona aðeins til þess að loka þessu þá snýst hreyfingafræðin í raun og veru um skilning, að auka skilning á mikilvægi réttrar tækni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00041 665752 668208 train Og af hverju það er svona mikilvægt. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00042 668278 681813 train Af því að það er hagkvæmara fyrir okkur, það veldur okkur minna álagi, það hjálpar okkur við að bæta, beita meiri krafti, og þar af leiðandi ná betri árangri. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00043 682211 696554 train Nú, eins fjallar þetta líka svolítið um skilning okkar á þeim lögmálum sem gilda um hreyfingar og hvernig svona innri og ytri kraftar hafa áhrif á okkur. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00044 697159 700806 train Munum koma aðeins betur á það, inn á það í næstu viku. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00045 701684 715321 train En mig langar að skilja ykkur eftir með verkefni sem að ég vil að þið skrifið niður. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00046 715321 727343 train Aldrei meira en ein blaðsíða, samt sem áður, þar sem mig langar að heyra aðeins bara ykkar vangaveltur um hvað þarf til þess að geta kennt góða tækni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00047 727881 734403 train Og þið megið taka bara eitthvert dæmi sem er ykkur nærtækt, ef að þið viljið það. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00048 734403 739470 train Þið megið líka tala um þetta bara svona, dálítið fleyta ofan af því. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00049 741132 744554 dev Þetta er hugleiðing um hvað þarf til þess að kenna góða tækni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00050 747181 750416 dev Ég tengi þetta dálítið mikið við, við kokka. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00051 752057 760624 train Það var þjálfari sem að, sem að sagði við mig einu sinni að þjálfarar væru eins og góðir kokkar. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00052 762486 768196 train Það hafi í raun og veru allir aðgang að sama hráefninu. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00053 768196 773624 train Það geta allir farið út í búð og keypt í matinn en það er alls ekki allir sem geta eldað. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00054 774244 783689 train Það er þar sem skilur á milli þess, hver er góður kokkur og hver getur bara búið sér til mat sem er hægt að borða. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00055 784190 790072 dev Þannig að þjálfararnir eru eins, við höfum öll aðgang að öllum heimsins upplýsingum. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00056 790075 798205 train Við getum leitað okkur ráða með ýmsum hætti, en það eru ekki allir sem að geta miðlað því til iðkenda og gert þetta betur. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00057 799550 807648 dev Ég vil svolítið að það hafi, þið hafið það sem útgangspunktinn ykkar í þessari hugleiðingu, hvað þarf til þess að kenna góða tækni. 7d68983b-e453-4dad-a62e-469a0ad7473d_00058 808828 810094 train Gangi ykkur vel.