segment_id start_time end_time set text 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00000 1199 5549 train Í þessum þriðja hluta af ellefta kafla erum við að tala um hömlun viðbragða. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00001 6639 16396 train Og þar er vel við hæfi að rifja upp tilfellið um hann Phineas Gage, námuverkamann, manninn, sem fékk járntein í gegnum höfuðið. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00002 17760 45862 train Það var einmitt kviðmiðlæga fremra ennisblaðið meðal annars sem sem varð fyrir skemmd í þessu slysi hans og hann missti svona þessar hömlur, varð svolítið óviðeigandi í hegðun, varð svona skapmeiri en hann hafði verið áður og annað slíkt, og þetta einmitt tengist þessari, þessari virkni eða starfsemi kviðmiðlæga fremra ennisblaðsins sem við ætlum að skoða aðeins betur hérna. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00003 50441 61924 train Í þessum kafla, ellefta kafla geðshræringa, þá höfum við verið aðallega að tala um svæðið möndluna og fremri ennisblöðin. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00004 61924 67593 train Mandlan, við vorum að tala um hana, að hún virkjaðist til dæmis við hræðslu hjá fólki. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00005 68748 72260 train Meðan fremri ennisblöðin væru, væru svona meira mótvægi. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00006 73665 96679 train Þegar þau virkjuðust þá væri það til þess að slökkva á til dæmis skilyrtu viðbragði, það væri til þess að hamla einhvers konar viðbrögðum og núna förum við einmitt að skoða aðeins hvernig hvernig þessi ennisblöð, fremri ennisblöðin eða hluti af þeim, hafa með að gera siðferðilega dómgreind, svona flóknari félagsleg hegðun. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00007 97792 117679 train Það rímar mjög vel við það sem við sjáum hérna á þessari mynd, sem er mynd úr bókinni þar sem er verið að sýna mismunandi þroska möndlunnar og fremra ennisblaða og mandlan þroskast mun fyrr, tekur tekur tekur þroska og er komin með nokkuð góðan þroska hjá börnum. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00008 115578 123292 train Meðan fremri ennisblöðin þroskast síðar og ná ekki fullum þroska fyrr en á fullorðinsárum. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00009 125299 138390 train Siðferðileg dómgreind er eitthvað sem við þurfum á að halda mjög oft í daglegu lífi og talið er að sé stýrt að stórum hluta með svona geðshræringum. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00010 139520 153944 train En að þegar við erum að leysa sem við köllum siðferðilegan vanda, moral dilemmas, að þá virkist kviðmiðlæga fremra ennisblaðið sem við vorum búin að tala svo mikið um, og það sé nauðsynlegt til að leysa, leysa þessi þessi verkefni. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00011 155568 172950 train Við skulum kíkja aðeins á svona tilbúin tilbúin verkefni þar sem talið er að reyni á þessa siðferðilegu dómgreind okkar, lestarverkefnið sem fjallað er um í kennslubókinni, svona klassískt klassískur siðferðilegur vandi, ímyndaðu þér að þú sért á lestarteinum. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00012 173913 180018 train Það kemur lestarvagn, og hann er við það að keyra yfir fimm manneskjur. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00013 180018 190069 train Þú getur tekið í í svona stöng, stýrt lestinni yfir á annað lestarspor, bjargað þessum fimm manneskjum, en þá deyr einn. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00014 194579 202159 train Önnur sviðsmynd, mynd bé hérna að ofan, þar værirðu í svipuðum aðstæðum. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00015 202189 207807 train Þú værir við lestarteina, lestin væri við það að keyra á fimm manneskjur. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00016 207634 213472 train Ef þú myndir hrinda einni manneskju af brúnni þar sem þú stendur. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00017 215277 220586 train Þá myndi hann stoppa lestina, hann myndi deyja en þú myndir bjarga þessum fimm einstaklingum. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00018 223546 228360 train Þetta er bæði svona mjög óraunverulegar aðstæður og erfiðar ákvarðanir að taka, 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00019 229961 242050 train flestir myndu þó segja að í seinna tilvikinu væri erfiðara að taka ákvörðun vegna þess að þar værirðu að hrinda manneskju í staðinn fyrir bara að toga í í einhverja stöng. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00020 243633 263103 eval Þarna hefur verið talað um að að að þetta séu, þarna séu komin meiri svona siðferðileg, siðferðileg dómgreind, meiri geðshræringar inn í ákvarðanatökuna en ekki bara rökrétt ákvarðanataka um hversu margir deyja í hvoru tilfellinu fyrir sig, hvora, hvora ákvörðunina ætlarðu að taka. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00021 265314 273053 train Til þess að taka þessa siðferðilegu ákvarðanir, þá virðist kviðmiðlæga fremra ennisblaðið virkjast. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00022 274048 282232 train Einstaklingur sem væri með skerðingu á því svæði, hann ætti þá í rauninni mjög auðvelt með að taka svona ákvörðun. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00023 281978 300175 train Hann tæki hana eingöngu rökrétt. Það væri ekkert mál þá að ýta þessum eina út af brúnni, vegna þess að hann notaði bara rök, rökvísina og við værum þá þarna, að það væri verið að bjarga fimm manneskjum á kostnað einnar manneskju. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00024 302524 306093 eval Og svo eru tekin nokkur dæmi fleiri, kíkjum hérna á næstu glæru. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00025 309016 313935 train Hér sjáið þið nokkur dæmi sem tekin eru úr rannsókn sem fjallað er um í kennslubókinni. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00026 313156 334497 train Og þarna er í rauninni verið að aftur að reyna að greina á milli hvað felst í þessari siðferðilegu dómgreind, það er að segja svona aðstæður þar sem sem sem reyna þar á og þá erum við að tala um að þetta þriðja, þriðja tilvikið sem lýst er hér, að þar sértu í rauninni að reyna á þá þætti. 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00027 334528 356954 eval Þá, þá er svona komin, þá þá þá eru komnar geðshræringarnar inn í ákvarðanatökuna og þá þarftu að takast á við það, þá eru þetta ekki eins rökréttar ákvarðanir um bara kosti og galla hverrar ákvörðunar eins og eins og væri í rauninni í hinum tveimur tilfellunum og ég hvet ykkur til þess að lesa þetta og lesa, 916006cb-d9ab-4279-b153-9a5865464e51_00028 356624 369894 train þessu er mjög vel lýst í kennslubókinni, til þess að átta sig betur á því hvað, hvað átt er við með þessari siðferðilegu dómgreind, hvað átt er við með virkni kviðmiðlæga fremra ennisblaðsins í þessum tilvikum.